Freyr - 01.04.1970, Síða 32
STEFAN SCH. THORSTEINSSON:
Tilraunip með kjarnfóður
handa ám eftir hurð
Á síðastliðnu vori var hafizt handa með til-
raun með mismikla kjarnfóðurgjöf handa
tvílembum og einlembum eftir burð þar til
þeim var sleppt á úthaga, á fjárræktarbúi
Rannsóknastofnunar landbúnaðarins á
Hesti í Borgarfirði.
I. Kjarnfóðurgjöf handa tvílembum
í þessari tilraun voru þrír flokkar með 22
tvílembum í hverjum flokki. Einn flokkur-
inn fékk 900 g af fóðurblöndu, annar flokk-
urinn fékk helmingi minna, eða 450 g, og sá
þriðji 900 g af heykögglum. Fóðurblandan
samanstóð af 88% maís, 10% síldarmjöli og
2% af steinefnablöndu og þurfi 1.0 kg í
fóðureiningu. Fóðurgildi heykögglanna var
ákvarðað og reyndist þurfa 1.3 kg í hverja
fóðureiningu, og samsvarar því 900 g af
þeim um 690 g af fóðurblöndu með 1.0 kg
í fóðureiningu.
Ánum var skipt í flokkana jafnóðum og
þær báru. Við flokkaskiptinguna var tekið
tillit til afurðaeinkunnar ærinnar undan-
farandi ára, burðardags, fæðingarþunga og
kynja lamba. Ærnar voru á þriðja til ní-
unda vetri og var meðal aldur þeirra hinn
sami í öllum flokkum. Ærnar voru teknar
JEPPA OG
TRAKTORSKERRUR
með veltiskúffu og sjálfvirkri
losun. Breidd 130 cm, lengd
210 cm. Ber 1000 kg.
Smíðuð úr léttstáli fyrir allar
gerðir jappa og traktora.
Ef þú átt gamla kerru þá
tökum við hana upp í sem
greiðslu.
Greiðsluskilmálar við allra
hœfi.
Smíðum einnig allar gerðir
af vögnum, hestakerrum og
heyvögnum. — Fast verð.
Gerið svo vel að leita nánari
upplýsinga.
Þ. Kristinsson, Bogahlíð 17, Reykjavík, sími 81387
168
F R E Y R