Freyr - 01.04.1970, Blaðsíða 35
Hið hagstæða gæðamat og háa kjöthlut-
fall lambanna í 900 g fóðurblönduflokknum,
ásamt mestum vaxtarhraða yfir sumarið og
þyngri föllum bendir til þess, að lömbin í
þessum flokki hafi búið við betra atlæti yfir
sumarið en lömbin í hinum flokkunum, en
þar er munurinn svo til enginn á sláturgæð-
um. Stærðfræðilegt mat var lagt á niður-
stöður þessarar tilraunar og reyndist munur
milli flokka óraunhæfur. Þar sem afurða-
mismunur flokkanna reyndist óraunhæfur,
er frá tilraunafræðilegu sjónarmiði ekki
ástæða til að ræða niðurstöður þessarar til-
raunar frekar. Að þessu sinni skal þó bent
á hina hagfræðilegu hlið, því hún varðar
bændur mestu.
Ef kílóið af dilkakjöti með sláturafurðum,
sem því fylgja, er metið á kr. 100,00 nemur
verðmæti afurðaaukningar tvílembanna í
900 g fóðurblönduflokknum kr. 122,00 miðað
við 450 g flokkinn og kr. 126,00 miðað
við heykögglaflokkinn. Ef fóðureiningin í
heyi er metin á kr. 6,00 og fóðureiningin í
fóðurblöndunni á kr. kr. 7,00 og heyköggl-
unum á kr. 7,80 kemur í ljós, að fóður-
kostnaður ánna í 900 g fóðurblönduflokkn-
um nemur kr. 64,00 umfram fóðurkostnað
ánna í 450 g fóðurblönduflokknum og 25,00
umfram fóðurkostnað ánna í heyköggla-
flokknum. Verðmæti afurðaaukningar í 900
g fóðurblönduflokknum borgar því fyllilega
hið aukna fóður miðað við hina flokkana, en
aftur á móti borgar fóðuraukinn í hey-
kögglaflokknum sig engan veginn miðað
við 450 g fóðurblönduflokkinn, þar sem
engin afurðaaukning kemur fram við aukna
fóðrun í heykögglaflokknum.
II. Kjarnfóðurgjöf handa einlembum
í þessari tilraun voru þrír flokkar með 16
einlembum í hverjum flokki. Tveir flokk-
anna fengu fóðurblöndu eins samsetta og
áður er greint, annar 450 g en hinn 250 g, en
þriðji flokkurinn fékk ekkert kjarnfóður,
eingöngu töðu. Ánum var skipt í flokkana
á sama hátt og í tilrauninni með tvílemb-
urnar, sem skýrt er frá hér að framan.
Ærnar voru teknar í tilraunina um sólar-
hring eftir að þær báru og hver flokkur
fóðraður sér. Innistaða var aðeins 3 fyrstu
daga tilraunarinnar þar sem túngróður var
enn sáralítill á túnum, en eftir það voru
ærnar settar á tún jafnóðum og þeim var
skipt í flokkana .Hver flokkur hafði aðgang
að túnspildu um 1.6 ha að stærð og var um
0.20 ha útjörð í hverju hólfi.
Ánum, sem fengu ekkert kjarnfóður, var
gefið um 1.6 kg af töðu til jafnaðar á dag,
en þær átu að meðaltali 1.4 kg. Dagleg töðu-
gjöf fór nokkuð eftir því hvernig ærnar átu
upp. Meðalfóðureyðslan í þessum flokki var
því 0.88 FE á dag. Meðaltöðugjöf ánna, sem
fengu 250 g og 450 g af fóðurblöndu, reynd-
ist hin sama, 1,5 kg í báðum þessum flokk-
um á dag til jafnaðar og einnig reyndust
þær hafa etið sama magn 1.3 kg að meðal-
tali á dag. Meðalfóðureyðsla í fóðureining-
um á dag yfir gjafatímann reyndust 1.06 FE
í 250 g fóðurblönduflokknum og 1.26 í 450 g
fóðurblönduflokknum, en aðeins 0.88 FE í
töðuflokknum.
Ánum var sleppt á úthaga 2. júní. Tafla
IV sýnir meðalþunga tilraunalambanna af
báðum kynjum á fæti í hvert sinn er þau
voru vegin og tafla V sýnir vaxtarhraða
þeirra á hinum ýmsu tímabilum yfir sumar-
ið.
Tafla IV.
Meðalþungi tilraunalambanna á fæti kg
Ekkert 250 g 450 g
Bæði kyn kjarnfóður fóðurbl. fóSurbl.
Tala lamba .... 15 16 16
Við fæðingu .... 4.07 4.15 4.18
Við lok túnbeitar 7.51 7.98 8.22
Tala lamba um
rúning........ 14 15 13
Um rúning........ 17.00 18.60 18.42
1. október ...... 37.75 41.30 42.14
FlEVl
171