Freyr

Årgang

Freyr - 01.04.1970, Side 36

Freyr - 01.04.1970, Side 36
Tafla V. Meðalvaxtarhraði tilraunalambanna g á dag Bæöi kyn Ekkert kjarnf. 250 g fóðurbl. 450 g fóðurbl, Tala Á túni frá fæðingu til 15 16 16 2. júní 281 297 306 Frá 2. júní til rúnings 300 341 324 Tala lamba við rúning 14 15 13 Frá fæðingu til rúnings 291 329 320 Frá rúningu til 1. okt. 222 245 265 Frá fæðingu til 1. okt. 249 274 281 Á túnbeitartímabilinu, sem stóð frá 18. maí til 9. júní er einlembunum var sleppt á úthaga, var vaxtarhraði lamba af báðum kynjum 25 g meiri á dag í 450 g fóður- blönduflokknum en í þeim flokki, sem ærn- ar fengu eingöngu töðu, en aðeins 9 g meiri en í 250 g fóðurblönduflokknum. Eftir að ánum var sleppt á úthaga og fram að rún- ingu 2. júlí, eykst vaxtarhraðinn í öllum flokkum, og virðist því sem ærnar hafi ekki fengið fullnægt fóðurþörf sinni á túninu, eins og kom fram hjá fóðurblönduflokkun- um í tvílembutilrauninni. Mest er vaxtar- hraðaaukning hjá lömbum í 250 g fóður- blönduflokknum, en vaxtarhraðinn er mest- ur í öllum flokkum á þessu tímabili. Yfir allt tímabilið, frá sauðburði til rún- ings, er vaxtarhraðinn mestur í 250 g fóður- blönduflokknum, og munar þar mestu hve lömbin í þessum flokki uxu vel eftir að ánum var sleppt á úthaga. Frá rúningu og til hausts fer vaxtarhraðinn minnkandi í öll- um flokkum, og er hann minnstur í þeim flokki, er ærnar fengu ekkert kjarnfóður eftir burðinn, en mestur í 450 g fóður- blönduflokknum. Bendir þetta, eins og í til- rauninni með tvílemburnar, til þess að þær ær, sem fengu mesta magn af kjarnfóðri, hafi verið bezt undir sumarið búnar og haldið lengst á sér. Yfir allt vaxtarskeiðið 134 daga er vaxtar- hraði lambanna í 450 g fóðurblönduflokkn- um aðeins 7 g meiri á dag til jafnaðar en í 250 g fóðurblönduflokknum en 32 g meiri en í þeim flokki, þar sem ærnar fengu ekk- ert kjarnfóður. Er þetta mjög í samræmi við niðurstöður í tilrauninni með tvílemburnar. Tafla VI sýnir meðalsláturafurðir tilrauna- lambanna af báðum kynjum. 172 F R E Y R

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.