Freyr - 01.02.1971, Page 12
J5EÐ OQ HEyRT f NORECJ$FOR
3. Sláturhús Sölufélags Rogalands á Forus
Frh. af síðasta blaöi.
Nokkiuð sérstætt — og líklega eftirtektar-
verðast, frá sjónarmiði bændastéttar —
sem bar fyrir sjónir og gaf tilefni til um-
hugsunar, var hið nýja sláturhús sölufé-
lagsins í Rogalandi. úBr því rétt og sjálf-
sagt að segja nokkuð frá tilveru þess og
starfsemi.
Sláturhús þetta er alveg nýtt. Það var
byggt á áruraum 1966—68. Fjármagn til
byggingar þess er allt fengið úr kraftfóður-
sjóði, en sá sjóður er fyrst og fremst not-
aður til þess að styðja og efla félagsfram-
tak bænda.
Tilgangurinn með byggingu þess var að
leysa af hólmi litlu sláturhúsin í byggð-
arlaginu, sem voru óhentug og misvel út-
búin, og móta hér viðhorf nútíma sniðs
þar sem fullkomnustu hreinllætis og heil-
brigðisráðstöfunum yrði við komið og
fullkomnasta tækni notuð við allar athafn-
ir. Þannig verður bezt séð fyrir hagrænum
árangri í þágu bændanna, sem senda af-
urðir búa sinna til þess að gera þær að
markaðsvöru, að nokkru sem sláturafurðir
og að nokkru í þágu búfjárræktarinnar, því
að hér er, auk sláturhússins, markaðsstað-
ur fyrir lifandi dýr. Markaður er haldinn
a. m. k. tvisvar í mánuði.
Sláturhús Rogalands
er hið stærsta í Noregi og hefur kostað
háar fjárhæðir, milljónir norskra króna,
en það er öllu öðru af líku tagi til fyrir-
myndar þar í landi og jafnvel þótt víðar
sé leitað. Þar er hægt að slátra árlega svo
mörgum skepnum, að nemi kjötmagni álíka
og’ árlega verður til á íslandi. Fyllstu kröf-
ur eru gerðar þarna um allar þær ráðstaf-
anir, sem eflt geta og aukið heilbrigðis-
háttu og vörugæði.
Það var árið 1962, að ákvörðun var tek-
in um að reisa þessi mannvirki. Land-
svæðið, sem byggt var á, á FORUS í
Stafangursveit, er 11 ha og var keypt fyrir
ca 13,5 milljónir ísl. króna. Þegar hafist
var handa um undirbúning árið 1964, var
byrjað á því að grafa og flytja um 160.000
m:l af jarðvegi.
Gróðursæld er í Stafangri bæði við götur (ofar)
og við vog og vík.
64
F R E Y R