Freyr - 01.02.1971, Blaðsíða 32
Dýraíita í næríngu iólks er hættulaus
Er þaSV ekki undarlegt aiV þær stofnanir, scm
með skipulögðum tilraunum prófa og ra-nn-
saka hvort fita ij(r dýraríkinu stuðlj að
hjarta- og æðamcinum, finna ekkert sam-
hengi þar í milli, cn sjúkdómafræðingar
fullyrða, að slíkir kvillar eigi að verulegu
eða mcstu leyti rót að rekja til neyzlu slíkr-
ar fæðu? Er það virkilega svo, að innan
læknastéttarinnar séu enn aðiljar, sem tjóðr-
aðir eru við ímyndaðar forsendur og hafa
að engu niðurstöður tilrauna og rannsókna?
Prófessor P. E. Jakobsen. lífeðlisfræði-
stofnun Búnaðarháskólans í Kaupmanna-
höfn. er einn þeirra, sem fyllir hóp til-
raunamanna á þessu sviði. Hann hefur að
undanförnu birt niðurstöður ýmissa tilrauna
með samanburð á jurtafitu og dýrafitu i
næringunni. í Landsbladct í desember s. I.
birti hann síðast yfirlit yfir tilraunir. sem
gcrðar hafa verið í Framingham í Ameríku
á undanförnum árum. f íslenzkri þýðingu
segir þar:
Umfangsmiklar rannsóknir hafa verið
gerðar í Framingham viðvíkjandi æða-
kölkun, hjartagöllum og blóðtappamynd-
unum í fólki. í því sambandi hafa 24 atriði
fæðunnar verið tekin til meðferðar og á-
hrif þeirra á kolesterolmyndun könnuð.
Rannsóknirnar hafa staðið í nokkur ár og
í þeim tekið þátt 437 karlar og 475 konur.
Dagleg orka fæðunnar var 2142 hitaein-
ingar hjá konum (þar af 39% úr fitu) og
3156 hjá körlum (þar af 40% úr fitu).
Ekkert ákveðið samhengi hefur fundizt
milli samsetningar fæðunnar og myndunar
kolesterols í blóðinu.
Framingham-rannsóknirnar sýndu eng-
an mismun á kolesterolmagni blóðs í hlut-
falli við fitumagn eða fitutegundir, né
kolesterolmagn í fæðunni. Um aðra þætti
fæðunnar, sem hér eru ekki tilgreindir
(svo sem ómettaðar sýrur, prótein og orku-
magn) gilti hið sama, þar var engan mun
að sjá í kolesterolmagni blóðsins. í um-
ræddum hópi fólks, sem tók þátt í rann-
sóknunum, varð ekki vart samhengis milli
fæðunnar og hjarta- og æðakvilla.
Það vœri djarft að draga alhliða álykt-
anir af ofangreindum árangri þessara um-
fangsmiklu og gaumgæfilegu rannsókna,
84
F R E Y R