Freyr - 01.02.1971, Blaðsíða 16
Heiðursfélngnr
r
Búnaðaríélags Islands
Búnaðarfélag íslands hefur nýverið kjörið
5 nýja heiðursfélaga, sem myndir birtast
af á þessari síðu. Þeir hafa allir átt sæti
á Búnaðarþingi og allir verið oddvitar fé-
lagsmála hver í sinni sveit og héraði um
áraraðir. Þeir hurfu af Búnaðarþingi sem
fulltrúar þar vegna aldurs á síðasta ári.
Auk umfangsmikillar félagsmálastarf-
semi hafa þeir allir verið athafnamenn um
framkvæmdir hver á sinni bújörð um ára-
tuga skeið.
Benedikt Grímsson,
Kirkjubóli í Strandasýslu,
Átti sæti á Búnaðarþingi
frá 1952.
Helgi Símonarson,
Þverá, Svarfaðardal,
átti sœti á Búnaðarþingi
frá 1962.
Ketill Guðjónsson,
Finnastöðum, Eyjafirði,
átti sæti á Búnaðarþingi
frá 1952.
Sveinn Jónsson,
Egilsstöðum, Héraði,
átti sæti á Búnaðarþingi
frá 1931.
Þorsteinn Sigfússon,
Sandbrekku, Héraði,
átti sœti á Búnaðarþingi
frá 1947.
68
F R E Y R