Freyr - 01.02.1971, Blaðsíða 38
Af A R
Búnaðarþing
ársins 1971 verður sett í Bændahiillinni mánu-
daginn þann 22. febrúar kl. 10 fyrir hádegi.
Hringbindi
til þess að festa inn skýrslur um árangur verk-
færaprófana hjá Bútæknideildinni á Hvanneyri,
fást enn bæði á Hvanneyri og hjá Búnaðarfélagi
Islands. Hvert bindi kostar 105 krónur plús póst-
kröfugjald.
Metuppskera
er sögð hafa verið í Rússlandi á síðasta sumri.
Kornuppskera kvað hafa numið 180 milljónum
lesta og þar af 80 milljónir hveiti. Næstmesta upp-
skera hefur verið árið 1966 en þá var hún 171,6
milljónir lesta.
í Noregi
hefur nýlega verið gert yfirlit yfir mengun lands
og vatna í sveitum. Svo sem kunnugt er skal
forðast að láta afrennsli frá votheyshlöðum renna
í læki og ár því að sá lögur eyðir súrefni vatns-
ins. Við rannsóknir á mengun af þeim sökum
komust menn að raun um, að frárennsli frá vot-
heyshlöðum í Noregi nemur 800 þúsund lestum
af pressuvökva á ári, en votheysverkun er mjög
útbreidd í Noregi sem kunnugt er. Umræddur
pressuvökvi er raunar áburður á graslendi ef
hann er notaður í hæfiiegu magni.
Félagsblað bændanna
í Svíaríki sagði frá því laust fyrir nýárið, að
kynbótastarfið bæri miklu betri árangur þar sem
kýr eru gervisæddar en þar sem venjulegt nauta-
hald er. í Svíþjóð eru 85% kúnna nú á spjaldskrám
sæðingarstöðva, þær, sem eru í eftirlitsfélögunum.
Afurðir þeirra voru á árinu 1968—69 að meðaltali
5.247 kg 4% mjólk eða 377 kg hærri meðalnyt
en hjá þeim kúm, sem ekki voru gervisæddar.
Sæðingartollur er þar nú 50 sænskar krónur en
það eru 850 íslenzkar. Hreyfing hans til hækkunar
að undanförnu hefur verið sem næst í sama hlut-
falli og verðhækkun mjólkurinnar.
Fregn frá Japan
getur þess, að dr. Yu Herayama, vísindamaður við
krabbameinsrannsóknarstofnunina í Tokyo, hafi
komist að raun um, að þeim sé ekki hætt við
krabba í maga, sem neyta mjólkur reglulega.
Ærið tilefni
Kona nokkur kom inn á skrifstofu lögmanns og
bað um aðstað til þess að skilja við mann sinn.
— Og hver er nú ástæðan til þess að þú vilt
fá skilnað? spurði hann.
— Ég held áreiðanlega að hann sé mér ótrúr.
— Já, sú ástæða er nú algeng saga, en er það
ekkert annað, sem þú hefur fram að færa?
— Jú, ég hef fulla ástæðu til að álíta, að hann
sé ekki faðir yngsta barnsins míns.
hefur verð á próteini stöðugt verið hækk-
andi, einmitt vegna hins mikla skorts á
vörunni.
BP vinnur ekki að þessu alveg út í blá-
inn. Áður hafa vísindamenn komizt að
raun um, að þetta er vel hægt, spurningin
er bara hvað það muni kosta. Svo langt
hafa menn komizt í þessum efnum, að olíu-
prótein hefur verið prófað til þess að fóðra
svín með því og m. a. má þar nefna, að
Norðmenn hafa reynt það í samanburðar-
tilraunum með grísi. Tveir grísir voru
fóðraðir með slíku próteini frá BP og til-
gangurinn var að kanna hvort fleskið
hefði annað bragð en þegar venjulegt fóð-
urprótein er notað. Þegar til kom var eng-
an mismun hægt að finna. Og svo virtist
sem vöxtur og eðli allt væri eins og hjá
öðrum grísum. Heimurinn bíður með eftir-
væntingu eftir því, að viðleitni í þessa átt
beri tilætlaðan árangur. Hver veit nema
við fáum bráðum BP-kraftfóður í hlöðuna?
90
F R E Y R