Freyr - 01.02.1971, Blaðsíða 35
STÖÐNUN í LANDBÚNAÐARFRAM-
LEIÐSLU 1969
I fyrsta sinn á 12 ára tímabili álti scr ekki slað
ncin aukning í samanlagðri landbúnaðar-, sjávar-
afurða- og timburframlciðslu heimsins á árinu
Í969, fyrst og fremst vegna samdráttar f iðnaðar-
löndunum, „þar sem vandamálið cr fremur fólgið
í offramleiðslu cn öfugt.“
' A þróunarsvæðunum í heild var samanlögð fram-
leiðsla meiri cn áður sem nam tveimur prósentum,
en sú aukning var að vísu minni en árin næst á
undan. Þessar upplýsingar og margar fleiri cr að
finna í ársyfirliti Matvæla- og Iandbúnaðarstofn-
unar Sameinuðu þjóðanna (FAO), „The State of
Food and Agrieulture 1970“ (SOFA). I»ar sem
fólksfjölgunin á þróunarsvæðunum nam 2,7 pró-
sentum, er í rauninni um að ræða minnkandi mat-
vælaframleiðslu miðað við fólksfjölda. Þetta á þó
ekki við um Austur-Asíu.
Stöðnunin í heimsframleiðslu matvæla 1969 er
þeim mun merkilegri, sem aukningin nam fjórum
prósentum 1968 og meðalaukning siðustu tíu ára
var nálega þrjú prósent.
Landbúnaðarframleiðslan jókst sama og ekkert,
en framleiðsla sjávarafurða minnkaði um þrjú
prósent. Aðeins timburframleiðslan jókst að ráði
eða um tvö prósent, cn aukningin síðustu tíu ár
var að meðaltali 1,7 prósenl.
LJÓSIR PUNKTAR
Þessi bráðabirgða-heildarskýrsla dregur upp ein-
hliða og dökka mynd af ástandinu, segja sérfræð-
ingar SOFA, cn sé litið nánar á tölur um hin
ýmsu svæði og einstök lönd, „koma í ljós ýmsir
uppörvandi drættir."
Sérfræðingar SOFA henda til dæmis á þann
uppörvandi drátt, að framleiðsluaukningin var nú
þriðja árið í röð mest í Austur-Asíu, þar sem
matvælaástandið hefur verið alvarlegast. Jafnvel
þótt sú 4 prósent aukning, sem gert var ráð fyrir,
sé einu prósenti minni en árið 1968, er hún samt
hærri en meðalaukningin undanl'arin áratug, sem
nam 2,0 prósentum.
(Síðastnefndu tölurnar ná ekki til Japans, scm
er flokkað meðal iðnaðárríkjanna, né heldur til
Kina, þaðan sem ekki hafa borizt neinar skýrslur).
Enn mikilvægari var sú verulega aukning, sem
átti sér stað í Indlandi, en hún nam fimm prósent-
um 1969. Einnig önnur lönd, sem hafa orðið að
flytja inn matvæil, svo sem Ceylon, Indónesía,
Pakistan, Suður-Kórea og Malajsía, hafa náð góð-
um árangri með því að leggja sig fram um áð
örva og auka kornræktina.
Ilrísgrjónaframleiðslan í Austur-Asíu jókst aftur
um sex prósent og hveitiframleiðslan um tíu pró-
sent, og stafar aukningin fyrst og fremst af því
að ræktaðar hafa verið nýjar tegundir korns, sem
miklar vonir eru við bundnar. Samanlögð mat-
vælaframleiðslan á þessu svæði jókst þó einungis
um fjögur próscnt vegna minni aukningar í hús-
dýraframleiðslu og samdráttar í bygg- og belg-
ávaxtaframleiðslu.
KÚAMYKJAN í USA
Talið er, að nú séu um 250.000 stórfjós (feedlols)
í U. S. A. og mörg þeirra eru í námunda við borgir
og bæi. Það segir sig sjálft, að stórar hjarðir
naulpenings skila mikilli mykju daglcga og allt
árið, en svo hagar víða til, að akrar eru ekki í
námunda og þarf þá að flylja mykjuna um lang-
vegu.
Wisconsin er mesta nautgriparæklarfylkið enda
er talið að framleiðsla mykju í því fylki sé um
45 milljónir lesta árlega. Þar um slóðir eru ekkí
bæjarlækir til að hleypa í gegn um haugana, enda
slikt hvorki leyft né talið æskilegt að cyða þannig
dýrmætuin jarðefnum og áburðarefnum. Hinsvegar
cr í þessu fylki lagl kapp á að koma áburðinum
fljólandi þangað, sem hann cr notaður. Mykjan
er þá þynnt með vatni. dælt í tanka síðán og
ckið út sem fljótandi áburði, þar sem henni verður
ekki dælt um pípukcrfi út á akra í sama ástandi.
Fréttin segir, að alls staðar þar, sem áhöfn sé
yfir 50 gripir, sé þessi aðferð ódýrust og liag-
kvæmust.
NORSKA SMJÖRFJALLIÐ ER HORFIÐ
Ilm nokkurt skeið fyrir fáum árum var stórt
smjörfjall í Noregi sem olli talsverðum áhyggjum
því að varðveizla smjörs og rýrnun þess kostar
fjármuni — er þjóðartap. Um það bil var neyzla
smjörs í Noregi aðeins 9000 lestir um árið. Nú er
þessu á annan veg farið'. Nú cr smjörneyzlan þar
í landi um 22.000 lestir á ári og síðastliðin 2 ár
liefur verið flutt inn smjör frá Finnlandi.
Smjörneyzlan nemur nú um 6 kg á mann á ári
en samanlögð neyzla smjörs og smjörlikis um 27
kg á mann. Norðmenn borðá því VA sinnum meira
smjörlíki en smjör, en smjörlíki í Noregi er 2'A
sinnum ódýrara en smjörið. Bæði smjör og smjör-
líki er niðurgreitt og er svipaðri fjárhæð af ríkisfé
F R E Y R
87