Freyr - 01.02.1971, Blaðsíða 17
Orðaforði í iandbúnaðarhagffræði
í 3. hefti af Nordisk Jordbrugsforskning
árið 1968 birtist orðalisti í landbúnaðar-
hagfrœði. Ég hef þýtt lista þennan. Á þýð-
inguna hafa litið Ketill Hannesson, Guð-
mundur Sigþórsson og Málnefndin, en í
henni sátu Jakob Benediktsson, Halldór
Halldórsson og Þórhallur Vilmundarson.
Við þýðinguna studdist ég við dansk-ís-
lenzka orðabók Freysteins Gunnarssonar
og fjölritaðan orðalista í hagfrœði o. fl.
sem ég fékk hjá Jakob Benediktssyni.
Listinn birtist hér ásamt þýddri greinar-
gerð sem fylgdi honum.
Reykjavík í janúar 1971.
Björn S. Stefánsson.
Ný tillaga, sem hlotið hefur meðmæli,
um sameiginlegan orðaforða Norðurlanda-
búa í landbúnaðarhagfræði
Hagdeild Félags norrænna búvísinda-
manna mælti árið 1950 með sameiginleg-
um norrænum orðaforða í landbúnaðar-
hagfræði. Meðmælin voru veitt vegna til-
lögu, sem fram kom á ráðstefnunni í Hels-
inki.
Fræðigreinin hefur þroskazt síðan þá.
Það var þörf á að endurskoða fyrri orða-
lista og bæta um leið við nýjum fræði-
orðum. Endurskoðunin var falin þeim
Josep Nóu, dr. agr., Sigmund Borgan, Emil
Vestergaard Jensen og Antti Máki. Josep
Nóu var fyrir þeim.
Tillaga þeirra var samþykkt og fékk
meðmæli stjórnar hagdeildar Félags nor-
rænna búvísindamanna og var lögð fram
á fundi deildarinnar á ráðstefnunni í
Kaupmannahöfn árið 1967.
Reynslan hefur sýnt að alltaf er mjög
erfitt að fá alla til að meðtaka skilgrein-
ingarnar alveg. Tillagan er því ekki send
til samþykktar félagsmanna, heldur er
hún lögð fram og mælt með henni.
Til þess að auðvelda samskipti landbún-
aðarhagfræðinga á Norðurlöndum mælir
stjórnin með því við félagsmenn, að þeir
noti þá heitaskipun, sem hér er mælt með.
Tillagan er birt að neðan.
Osló í desember 1967.
Fyrir hagdeild Félags norrænna búvís-
indamanna
Finn Reisegg
Orðaforði og heitaskipan í
landbúnaðarhagfræði
1. Framleiðsla og fleira
1.01. Framleiðsla1 (produktion) = öll
starfsemi, sem skapar verðmæti; nær bæði
yfir tilbúning (1.02) og sölustarfsemi
(1.03).
1.02. Tilbúningur (framstállning) =
starfsemi, sem skapar verðmæti, þar til
kemur að sölustarfseminni.
1.03. Sölustarfsemi (marknadsföring)
= geymsla vegna viðskipta, flutningur og
sala.
1.04. Framleiðsluföng2 (produktions-
medel) = allir útvegir sem lagðir eru til
framleiðslunnar (land, byggingar, jarða-
bætur, jarðarforði, vélar og tæki, búfé,
efniviður, vinna o. fl.).
1.05. Vinna (arbete) = framlag manna
til framleiðslunnar.
1 Hugtakið er einnig notað (almennt) í stað orðsins
tilbúningur (1.02) og í merkingunni tilbúið magn
á tímaeiningu.
2 Hugtakið er oft notað sömu merkingar og fram-
leiðsluþættir.
F R E Y R
69