Freyr - 01.02.1971, Page 14
I*etta langa stjórnborð er bæði
heili og hjarta starfseminnar.
Héðan er loftræstingu, raka-
hita- og kuldastigum stýrt og
héðan dreifist orkan, sem not-
uð er í öllum byggingunum.
Stórgripir .................... 13.030
Kálfar ........................ 10.152
Svín .......................... 67.575
Sauðfé ........................ 50.923
Hross ............................ 238
Geitur ........................... 613
Samkvæmt fyrirmælum heilbrigðis- og
hreinlætisyfirvalda skiptist sjálft slátur-
húsið í tvennt, hreina og óhreina hlutann,
og þar er enginn samgangur í milli. í
óhreina hlutann koma dýrin og þar er þeim
slátrað, annað gerist í fyrrnefnda hlutan-
um. Hér skal ekki rakinn gangur starfs-
ins, hann er eins og gerist í sláturhúsum
almennt, en kerfunin og allur aðbúnaður
er svo sem bezt verður á kosið og er eftir-
tektarvert allt, er þar að lýtur.
Hver skrokkur er veginn heitur og hon-
um gefið einkennismerki eiganda um leið
og þyngd hans er auðkennt á gatastrimli,
er fylgir áleiðis í kæliklefa, en strimillinn
kemur síðar í reikningshaldið.
Að sjálfsögðu fer þar fram dýralæknis-
skoðun og þá um leið frágreining gallaðra
og vanheilla skepna (afurða) og ennfrem-
ur er flokkað samkvæmt settum fyrirmæl-
um og tillit tekið til hreinlætis- og heil-
brigðisástands í hvívetna.
í kæliklefum og frystiklefum hanga
skrokkar í röðum, 400—600 skrokkar í
hverjum klefa, en svo sem 55—60 þegar um
ræðir stórgripi.
Til viðbótar því, sem hér er frá greint,
er svo flokkunarsalurinn, frystigeymslan
570 m2 að flatarmáli þar sem stöðugt er
25 stiga frost, brytjunarstöðin, söluhöllin
og önnur salarkynni, sem nauðsynleg eru
talin í fullkomnasta sláturhúsi landsins,
þar á meðal sérstök deild þar sem ullin er
flokkuð, eftir að sláturféð hefur verið vél-
klippt, og ullin síðan pökkuð á viðeigandi
hátt.
Frekari greinargerð um sláturhúsið er
ekki ástæða til að rekja, það þjónar sama
tilgangi og öll önnur af líku tagi, en mikið
vantar á að öll hin séu svo fullkomin sem
þetta, enda getur varla nokkur gestur, er
þar kemur, annað en undrazt yfir salar-
66
F R E Y R