Freyr - 01.02.1971, Qupperneq 19
2.02. Kaupvirði (anskaffningsvárde) =
verðmæti sem svarar til verðs og kostn-
aðar, þegar eignarinnar (1.10) var aflað.
2.03. Endurkaupsvirði (áteranskaffn-
ingsvárde) = það virði sem reikna verður
með að kosti að útvega nýja eign (1.10)
sem þjónar sama tilgangi í framleiðsunni.
Virðið er miðað við þann tíma sem matið
fer fram á.
2.04. Núvirði (nuvárde) = endurkaups-
virði (2.03) að frádreginni verðmætisrýrn-
un vegna aldurs og slits.
2.05. Notvirði (bruksvárde) = rekstrar-
fræðilegtverðmæti framleiðsluþáttar (1.04)
(bein not fyrirtækis af framleiðsluþættin-
um).
2.06. Kostvirði (alternativvárde) =
virði við aðra notkun.
2.07. Lógunarvirði eða frálagsvirði (ut-
rangeringsvárde) = virði fastrar eignar
(1.11) þegar hún er tekin úr notkun.
2.08. Vinnsluvirði (förádlingsvárde)
= verðmæti sem fæst fyrir hráefni í fram-
leiðsluferli, þegar annar kostnaður (3.02)
sem fylgir framleiðslunni (1.01) hefur ver-
ið dreginn frá tekjum (4.02).
2.09. Staðgengisvirði (ersáttnings-
várde) = verðmæti vöru miðað við aðra
sem getur komið í stað hennar, og er þá
tekið tillit til tæknilegra áhrifa í þeirri
framleiðslu (1.01) sem samanburðurinn er
gerður vegna.
2.10. Arðvirði (avkastningsvárde) =
virði arðs í framtíðinni forvaxtað til þess
tíma þegar metið er.
2.11. Söluvirði (försáljningsvárde) =
markaðsvirði (2.01) að frádregnum flutn-
ingskostnaði og öðrum sölukostnaði (3.04).
3. Kostnaður
3.01. Útgjöld1 (utgift) = fjárútlát til að
útvega framleiðsluföng (þjónusta innifal-
in) (1.04). Útgjöldum fylgir að minnkar í
i í sambandi við hugtakið „útgjöld" er rétt að
minna á orðið „greiðsla", en þá er átt við að
fyrirtækið láti peninga af hendi.
sjóði, kröfur minnka eða skuldir aukast.
3.02. Kostnaður’ (kostnad) = virði
þeirra framleiðslufanga (1.04) sem lögð
eru í framleiðsluna (1.01).
3.03. Tilbúningskostnaður (fram-
stállningskostnad) = allur kostnaður
(3.02) vegna tilbúnings (1.02) vörunnar.
3.04. Sölukostnaður (försáljnings-
kostnad = allur kostnaður (3.02) vegna
sölu (1.03).
3.05. Fyrning2 (avskrivning) = verð-
mætisrýrnun á föstum eignum (1.11) nema
landi (1.06) á eðlilegu rekstrartímabili.
3.06. Sérfyrning (nedskrivning) = þeg-
ar bókfært verð er fært niður einu sinni
sérstaklega.
3.07. Viðhaldskostnaður (underhálls-
kostnad) = kostnaður (3.02) vegna jafns
viðhalds á föstum eignum (1.11).
3.08. Vaxtakostnaður (rántekostnad)
= vextir af fjármagni sem fest er í fyrir-
tækinu (bæði eigið fé og lánað).
3.09. Fastakostnaður (fast kostnad) =
kostnaður (3.02) sem er óháður fram-
leiðslumagni á tilteknu skeiði.
3.10. Breytilegur kostnaður (rörlig
kostnad) = kostnaður sem breytist með
framleiðslumagni á tilteknu tímabili.
3.11. Beinn kostnaður3 (direkt kostn-
ad) = kostnaður (3.02) sem varðar greini-
lega aðeins eina framleiðslugrein eða afurð
og er færður í bókhaldi á þá framleiðslu-
grein eða afurð.
3.12. Óbeinn kostnaður3 (indirekt
kostnad) = kostnaður (3.02) sem varðar
tvær eða fleiri framleiðslugreinar eða af-
urðir eða kostnaður sem ekki er færður
beint á tiltekna afurð eða framleiðslugrein
í bókhaldi, nema hvort tveggja sé.
1 Kostnaður í bókhaldi = útgjöld bundin við á-
kveðið tímabil. KostnaðarverS er allur kostnaður
(3.02) af ákveðinni afurð í tilteknu fyrirtæki.
2 Að greiða skuld nefnist afborgun.
3 Hugtökin beinn kostnaður og óbeinn kostnaður
eru aðallega notuð í bókhaldi. Hins vegar eru
hugtökin sérkostnaður og samkostnaður notuð í
áætlunum.
F R E Y R
71