Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.12.1972, Qupperneq 8

Freyr - 01.12.1972, Qupperneq 8
oftast gjört, við ahyggjur, hættur og ör- yggisleysi í margs konar myndum. Þeir rýna út í myrka nóttina, um leið og þeir ylja sér umhverfis varðeldinn. Aldrei mega þeir vera varbúnir utanaðkomandi hœtt- um, sem að hjörðinni steðja, því að vargar og ræningjar liggja í leynum og bíða færis að hremma sauði hjarðarinnar. En skyndilega er kyrrð næturinnar rofin, og á augabragði er bjart sem á alskœrum sumardegi. Himneskur boðberi birtist, og erindi hans er stutt og einfalt, þetta: Verið óhrœddir, fagnið, frelsarinn er fæddur. Og þá gerist jólaundrið, áhyggjur hirðanna hjöðnuðu sem dögg í skini sólar, en fögn- uður gagntók þá og lœsti sig um hverja taug. Hin niðdimma nótt í sálum þeirra var vikin fyrir skínandi degi. Og þeir héldu rakleitt til Betlehem til þess að veita kon- unginum nýfædda lotningu sína. Hann hafði eignast vöggu í sálum þeirra þessa nótt, þeim var frelsari fæddur. * * * Kristur grípur iðulega til líkinga úr hjarðlífinu, og líkir sjálfum sér til dæmis við góða hirðinn, er leggur líf sitt í söl- urnar fyrir sauðina og kœrleika Guðs til allra manna lýsir hann vel í dœmisögunni um týnda sauðinn. Með allt þetta % huga virðast því fáir hafa verið betur til þess fallnir en hjarðmennirnir til að meðtaka fyrstir boðskapinn dýrðlega um fœðingu Guðssonarins, þessa einlæga vinar hinna fátæku og hógvœru, enda stóð ekki á við- brögðum þeirra. Þeir skunduðu af stað að leita frelsarans nýfædda. Við höfum nú um hríð skoðað þann at- burð, er tíðahvörfum olli í mannheimi. Það er auðvelt að sjá hann í anda með hjálp hrífandi, myndrœnnar frásagnar úr Biblíunni. Það er auðvelt að hrífast sem skoðandi af látleysi hans, fegurð og ein- faldleik. Hjarðmaðurinn sá í minnsta blaði blóms skapandi mátt Guðs síns, þýður vindblær- inn varð honum sem kærleiksandvarp æðri heima og vermandi geislar sólar sem mjúk hönd Guðs léki fingrum um sköpunarverk- ið. Þannig öðlaðist búmaðurinn af blómi jarðar smáu vitund um Guð sinn, einlœga Guðstrú í sál og hið órjúfanlega trúnaðar samband hans við hjörðina varð honum táknmynd þess, hversu samfélag Guðs og manna ætti að vera. Þú getur hrifizt af fögru listaverki á sýningu eða fallegu sviðsatriði í leikhúsi, en hrifningin hjaðnar von bráðar og dvín og hversdagsleikinn tekur við á ný. Og þannig er um atburði jólaguðsspjallsins. „Fjárhirðum fluttu, fyrst þann söng Guðs englar.“ Fagnaðartíðindin voru ekki flutt hirðunum einum, ekki ákveðnum hópum manna eða stétta á vissum tíma- bilum, heldur er fögnuður jólanna boðaður öllum lýðnum, öllum mönnum um víða veröld, einnig þér og mér. Þú ert einnig staddur á þínum Betlehemsvöllum. Þú hefur skyldum að gegna eins og hirðarnir forðum, átt þína hjörð að annast og gæta. Ef til vill átt þú við áhyggjur og erfið- leika að etja og kannski hefur sorgin sótt þig heim. Að þér sœkja einnig hættur, freistinga og synda í varhugaverðri veröld illsku og margs kyns ógna, og öll erum við vigð forgengileika og fallvelti lífsins. Já, það er í mörgum skilningi dimm nótt, einnig á þínurn Betlehemsvöllum, dimmt fyrir innri sjónum þínum. Jólaundrið hefur gerzt á öllum öldum í lífi milljóna manna, er eignuðust innri fögnuð trúarinnar, upplifðu jólaviðburð- inn í eigin sál. Bið þess að undrið gerist einnig í þinni sál. Bið hljóður á Betle- hemsvöllum þínum eftir jólanóttunni góðu, og vertu ekki áhorfandi að því sem þar fer fram, heldur reyndu með Guðs hjálp að öðlast hlutdeild í fagnaðarboðskapn- um, sem felst i orðunum: Yður er í dag frelsari fœddur. Gleðileg jól! í frelsarans nafni. 464 F R E Y R
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.