Freyr - 01.12.1972, Qupperneq 58
Alþekkt er að sauðté er sólgið í
matarsalt. Það sleikti og nagaði
s'ldarti'nnur fyrrum þegar að-
staða gafst til og rekaviðar-
staurar í girðingum eru einatt
étnir upp til agna.
Saltsteinn í högum er hyggi-
leg ráðstöfun.
í lítra, en einn millíekvívalent natríums er
23 millígrömm. Þetta þykir heppileg eining
í líffræðinni. Miðað er við rannsóknir frá
Ástralíu (2). Mælt var natríummagn í
þvagi kinda, sem voru að koma af afréttun-
um. Þessar mælingar má að vísu gagnrýna
þannig að féð í réttum er stundum langt
að komið og svangt. Tafla 3 sýnir niður-
stöður þessara mælinga:
Tafla 3.
Fjöldi Natríum meq/I
Þverárrétt 8 1,5
Fljótstungurétt 13 2,4
Gjábakkarétt 7 1,8
Meðaltal allra 28 2,0
Fimm kindur frá einum bæ skáru sig úr
í Þverárrétt og höfðu þær eðlilegt magn
natríums í þvagi og er ekki vitað um ástæð-
una. Annars var hæsta gildi fundið í þvagi
aðeins 8 meq/1 og það lægsta 0,2 meq/1.
Féð í Þverárrétt var holdgott, en misjafn-
ara í hinum réttunum. Þetta natríummagn
í þvagi ánna er mjög lítið og svipað og er
í skepnum í salthungri.
Mæling á hemóglóbíni og hematókrít er
sýnd í töflu 4. MCHC er tölugildi sem er
fundið með því að deila hematókrít í 100
falt gildi hemóglóbíns. Þessi stærð gefur
til kynna hvort eðlilegt magn hemóglóbíns
sé í blóðkornunum.
Tafla 4.
Fjöldi Hb Hkr MCHC
Flj ótstungur étt 14 14,4 41,8 34,52
Gjábakkarétt 7 13,8 41,4 33,31
Þverárrétt 15 13,6 38,5 35,24
Meðaltal allra 35 14,0 40,4 34,57
Þessi sömu atriði voru mæld í ám á
Hvanneyri í Borgarfirði árin 1970—1971.
Meðalmagn hemóglóbíns reyndist þar vera
nálægt 12 g/100 ml, en hér er meðaltalið
um 14. Á Hvanneyri eru ærnar fóðraðar
að nokkru leyti á natríumríku flæðiengja-
heyi, og er þar að auki beitt á land sem
sjóblandað vatn flæðir yfir. MCHC er eðli-
legt í afréttarfénu miðað við ærnar á
Hvanneyri.
Natríum var mælt í blóði ánna í réttun-
um. Reyndist það vera svipað í þeim öllum
eða um 140 meq/1. Þetta er eðlilegt magn,
en þó um 10 meq/1 lægra en í Hvanneyr-
514
F R E Y R