Freyr

Årgang

Freyr - 01.12.1972, Side 22

Freyr - 01.12.1972, Side 22
Drykkjarhorn þetta er talið vera frá aldamótunum 1400. Það er á Sandvigs safni á Litla Hamri. Sagan segir, að huldu- kona haíi beðið mann að drekka af því, en hann brá hcndi aftur fyrir bak og lét ómynnisdrykk- inn renna úr og kom svo með hornið heim í Lo. Hún ætlaði að seiðmagna piltinn og fá hann í hulduheim með sér, en ef svo hefði farið mundi hvorki piltur né hornið nckkru sinni ba'a komizt til mannheima. Og veg- legt cr hornlð. til þess að spila fyrir dansi var harpan hið forna hljóðfæri en fiðlan síðar. Valt á miklu að strengir væru stroknir til unaðar öllum heyrendum og því til þess kjörnir frægir fiðlarar, sem þannig urðu fastir gestir til slíkra hlutverka, jafnvel heilan mannsaldur. í broddi fylkingar í brúðar- göngunni gekk fiðlarinn líka og var hann því mikilsverð persóna við hverja brúðar- för. Þjóðtrú og hulduheimar. Það geta varla talist nokkur undur, að þjóðtrú, hættir, siðir og venjur í hinum ýmsu hlutum hins víðlenda Noregs, hafa um allar aldir verið breytileg fyrirbæri á ýmsum skeiðum. Fólkið hefur trúað á sína guði, á fyrirbæri umhverfisins og náttúr- unnar og á mátt sinn og megin, rétt eins og gerðist með ýmsa þeirra, sem tli íslands réðuzt á söguöld, víkingaöld og á öllum öðrum tímum. Þursar bjuggu í björgum, og álfar í hól- um og steinum og nykur í vötnum, góðir og illir vættir hvarvetna. Trúin virðist eiga dýpri rætur í mann- legu eðli en flestir aðrir eiginleikar. Ýmsir kraftar í náttúrunni voru ekki aðeins voldugir heldur og vingjarnlegir eða ill- vígir eftir því hvern hug manneðlið bar til þeirra. Sólguðinn var dýrkaður og ekki að ástæðulausu, því að á norðlægri slóð voru bæði myrkur og kuldi óvinir mann- kynsins og þá gat sólin og máttur hennar gert brottræka. Það var því eðlilegt og sjálfsagt að blíðka sólguðinn og það var gert með því að offra einhverju góðu á altari hans. 478 F R E Y R

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.