Freyr

Árgangur

Freyr - 01.12.1972, Blaðsíða 28

Freyr - 01.12.1972, Blaðsíða 28
E-vitamín í fóðurblöndum. Þegar reikna skal magn E-vitamíns í fóð- urblöndur, skal telja með eðlilegt magn tokoferols í ýmsum samböndum fóðurefn- anna. Að sjálfsögðu er magnið háð gæðum hinna einstöku efna í blöndunni, sem getur verið talsvert breytilegt. Náttúrlegar birgð- ir af E-vitamíni í hinum einstöku hráefn- um blöndunnar geta verið mjög háðar um- hverfinu og niðurrifsöflum þess, einkum þegar um ræðir snertingu við ómettaðar feitar sýrur. Þá er eðlilegt að minnast þess, að E-vitamín, íblandað sem tokoferylacetat, er mjög stöðugt efnasambandi og hefur ekki efnaverkanir í fóðrinu né í meltingar- vegi skepnunnar. Þessvegna getur það skeð, að fjölsýrandi efnabreytingar í hrá- efnum fóðurblöndu geti haft neikvæðar verkanir á E-vitamínefnaskiptin í fóðrinu eða í meltingarfærum fuglanna. E-vitamínþörfin. Þörf einstaklingsins fyrir E-vitamín virðist í tilraunum glöggt mörkuð á fugl við góð skilyrði, en sé miðað við heilar áhafnir og venjuleg skilyrði fer því fjarri, af því að þá eru ótal atriði, sem eru á allt annan veg en þar sem tilraunir eru gerðar. Séu öll atriði tekin með í dæmið, — fóðrun, umhverfi og arflæg fyrirbæri — sem á ýmsa vegu draga úr lífrænum ár- angri E-vitamíns, er það auðskilið mál, að ekki er unnt að ákveða nákvæmlega þörf- ina fyrir vitamínið á almennum vettvangi. Þessvegna eru engar fastar forskriftir til um virkilega þörf við venjuleg skilyröi. .. í Noregi eru til opinber fyrirmæli, lög og reglugerðir, um ákveðið magn af E- vitamíni (tokoferylacetat) er setja skal í fóðurblöndur. Þar eð E-vitamín hefur ekki eiturverk- anir virðist engin hætta vera bundin því að nota meira magn en beinar þarfir krefja. í samræmi við það, sem að framan er sagt um þessi efni, ætti að vera eðlilegt að blöndun í ungafóður alifugla í Noregi sé ekki háð hámarksákvæðum. En það er nú svo, að fyrirmæli eru um að tilkynnt sé hversu mikið er notað í fóðurblöndurnar. Vel má vera, að ástæða þyki til að við- urkenna einnig aðra andsýringa en vitamín E til þess að stöðva efnahreyfingar fitu eða grasmjöls í fóðurblöndum. Frjáls notkun E-vitamíns og aukna notk- un annarra andsýringa mætti skipuleggja með tilraunum, sem gæfu til kynna niður- stöður, er verða mættu hinn rauði þráður í sanngjarnri notkun umræddra efna þegar um ræðir fóðrun á almennum vettvangi. % H: * Eftirmáli. Um áratugi hafa rannsóknir á þörfum manna og dýra fyrir vitamín verið ofarlega á baugi. Með tilraunum og rannsóknum hefur tilvera vitamína verið staðfest, þeim gefin heiti og auðkenni og sum þeirra eru framleidd í efnaverksmiðjum. Skortur á vitamínum i næringu manna og skepna hefur einatt í för með sér vissa annmarka og kvilla, eða alvarleg veikindi ef skorturinn er mikill og lang- vinnur. Um áratugi hafa menn vitað um vitamín E og ýmsar verkanir þess, eða réttara sagt annmarka þá, sem koma í ljós þegar vitamín þetta skortir, en allt fram á síðustu ár hefur yfirleitt lítið verið vitað um fjölþætt áhrif þessa vitamíns. Svonefndir tokoferólar eru framleiddir og notaðir til blöndunar í fóður af því að sannað hefur verið að þeir hafa verkanir álíka eða eins og E-vitamínið. Uppi eru nú umfangsmiklar athafnir til þess að komast að raun um hvaða mælieiningar hægt er að nota til þess að sjá lífverum fyrir nægilegu magni þess svo að tryggt sé, að skortur valdi ekki veilum eða veikindum. Framanskráð grein hefur verið fengin til birting- ar til þess að gera almenningi ljóst hvað um er að ræða, án þess að geta markað nánar almenn viðhorf með tilliti til þessa efnis. Um skeið hefur verið vitað um þýðingu E-vita- míns með tilliti til frjósemi æðri dýra. Það hafa íslenzkir bændur og þekkt, en ekki vitað að stóð í samhandi við E-vitamín, sem sé þýðingu þess að skepnur njóti grænna grasa sem fóðurs. I því sam- bandi má líka minna á, að sannað hefur verið, að gamalt og lélegt hey skortir umrætt vitamín. Einnig hafa menn lengi þekkt, að ofneyzla Iaklegrar fitu hefur haft í för með sér hjartaveilur og fleiri galla, sem nú er vitað að standa í vissu sambandi við skort á umræddu vitamíni. Nánar verður vonandi hægt að greina frá þessum hlutum og öðru, sem tengt er E-vitamíni, á kom- andi árum. G. 484 F R E Y R
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.