Freyr

Årgang

Freyr - 01.12.1972, Side 34

Freyr - 01.12.1972, Side 34
Hópur norskra búenda frá Rogalandi, staddur í Hótel Sögu. Lengst til vinstri er fararstjórinn. Á mynd- inni eru, auk Norðmannanna, Árni G. Eylands (lengst til hægri) og kona hans (sú þriðja frá hægri. landið býður, einkum jarðhitann og nýt- ingu hans. Og svo eru þeir, sem spyrja mikið um önnur öfl og nýtingu þeirra, einkum vatnskraftinn, orkuframleiðslu og hlunnindi af laxveiðum eða veiðirétt og leigu hans. Á síðasta sumri komu hingað hópar bændafólks sem hér segir: . Félag ungra fjárræktarmanna í Græn- landi efndi til hópferðar og dvaldi hér dag- ana 16.—21. júlí. í hópnum voru 38 konur og karlar. Fór hann um Suðurland, Borgar- fjörð, umhverfi Reykjavíkur og skoðaði svo ýmis fyrirtæki, sem bændur hafa stofnað og starfrækja í Reykjavík. Töldu þeir hér sitthvað vera, sem bæði beint og óbeint geti orðið þeim til fyrirmyndar í búskap og félagslegu framtaki heima á Grænlandi á komandi árum. 2. Sænska vikublaðið LAND, sem gefið er út af bændasamtökunum, efndi til ferð- ar hingað á vegum ferðaskrifstofu. Voru þátttakendur 28 manns, konur og karlar. Dvöldu Svíar hér á landi 8 daga og fóru um Norðurland, allt til Kelduhverfis, suð- ur um Kjöl og um Suðurland einnig. Hóp- ur Svía kom hingað fyrir nokkrum árum undir fararstjórn sama manns og nú. Á vegum íslenzkra bændasamtaka mætti rit- stjóri Freys hópnum í Bændahöllinni og tjáði þar sitt af hverju um íslenzkan land- búnað, sem fólkið vildi fræðast um, eftir að hafa séð heilmikið af búskap og fram- taki íslenzkra bænda undir fararstjórn frá íslenzkri ferðaskrifstofu. Tjáði sænski far- arstjórinn við það tækifæri undrun sína yfir þeim framförum, sem hann hafi augum litið og gerzt hafa síðan hann var hér á ferð með annan bændahóp fyrir 6 árum. 3. Norskir bændur og nokkrar konur þeirra komu hingað þann 11. ágúst og dvöldu hér á landi 8 daga. Hópurinn var frá Rogalandi og fararstjóri hans var ís- lenzkur ráðunautur, sem starfandi er á því landssvæði. Nafn hans er Arinbjörn Jó- hannsson Kúld, er lokið hefur námi á Sem í Noregi. Hópurinn ferðaðist um Borgar- fjörð og Suðurland, skoðaði búskap og bú- háttu og sitthvað annað, sem áhugi var fyrir að kynnast hér. Þátttakendur í förinni voru 22. 490 F R E Y R

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.