Freyr - 01.12.1972, Qupperneq 35
Nýbygging BúnaSarbankans í Búðardal.
Búnaðarbanki
islands
Skýrsla Búnaðarbanka Islands um starf-
semi ársins 1971 kom út á fyrri hluta þessa
árs. Þar greinir frá sívaxandi starfsemi bank-
ans. Ileildarinnlán jukust um 570 milljónir
króna eða 20%, og námu 3.ýlli.,6 milljónum
í árslok.
Heildarútlán á árinu námu 3.091,7 milljón-
um og var aukning frá fyrra ári 17,8%. Þar
voru víxillán stœrsti flokkurinn.
Til afskrifta var varið 12,8 milljónum og í
varasjóð lagðar 8,4- milljónir króna. Starfs-
menn aðalbanka og útibúa voru 199, þar af
46 utan höfuðstaðarins.
Stofnlánadeildin veitti 1119 lán á árinu,
samtals 1.374 milljónir króna.
Veðdeildin veitti 87 lán að wpphœð 15,3
milljónir króna. Samkvœmt sérstökum lögum
var Veðdeildinni falið að breyta lausalánum
bœnda í föst lán og liefur á undanförnum
þrem árum verið hreytt, samkvœmt þeim,
130,9 milljónum króna.
Bankinn liefur tekiðvið fjármálafyrirgreiðsl-
um Lífeyrissjóðs bœnda. Nýtt útibú tók til
starfa á árinu að Markliolti í Mosfellssveit.
Súluritið á bls. 492 sýnir magn útlána á 10
árum til þeirra þriggja flokka, sem þar grein-
ir frá.
A súluritinu bls. 494 má sjá þá þróun, er
orðið hefur í fjármálum bankans s. I. 10 ár,
í aðalbanka og útibúum.
F R E Y R
491