Freyr - 01.12.1972, Side 43
Það var allmikið fyrirtæki árið 1912 fyrir
fátæka bændasyni að fara í skóla í fjar-
lægum landshluta, er við Guðjón bróðir
minn, frá Álfadal á Ingjaldssandi í Vestur-
ísafjarðarsýslu, ákváðum að fara í bænda-
skólann á Hvanneyri.
Við höfðum báðir verið í ungmennaskóla
sr. Sigtryggs á Núpi, og var það betri und-
irbúningur undir bændaskólanámið, en
flestir piltar úr öðrum landshlutum höfðu
þá.
Guðjón bróðir minn hafði sótt um skól-
ann fyrr en ég. í mér var tveggja bakka
veður, og vildi faðir minn að ég færi í
kennaraskólann, en sr. Sigtryggur réði
heldur frá því, enda mun löngun mín og
hneigð til kennslustarfa hafa verið tak-
mörkuð. Varð það úr að ég dreif mig í að
sækja um Hvanneyrarskólann seint um
vorið og fékk þar skólavist. Þar með var
lífsstarf mitt ráðið, og hef ég aldrei verið
óánægður með það. Þrír sveitunga minna
fóru þangað til náms haustið 1911 og sá
fjórði lauk þar námi vorið 1912. Farareyri
minn í peningum var kr. 200,00. Sumarið
1913 var ég kaupamaður á Hvanneyri og
hafði 14 kr. kaup á viku. í verklegu námi
var ég vorið og haustið. Verklegur náms-
styrkur minn var kr. 57,00, en bóklegur
námsstyrkur minn nam kr. 34,00. Dugði
þetta svo vel, að ég átti fáeinar krónur
afgangs er ég lauk námi vorið 1914.
Auðvitað var engu eytt í skemmtanir eða
annað. Þó fékk ég mér ein föt, er Þorbjörg
ráðskona Halldórs saumaði, en Halldór
seldi efnið. Einnig keypti ég annað smá-
vegið til klæða og skæða, sem óhjákvæmi-
legt var.
❖ * *
Maturinn kostaði fyrri veturinn frá 15. okt.
til 30. apríl, kr. 102,04, auk þess kr. 35,00
fyrir þjónustu og matartilbúning, er skóla-
stjóri sá um. Tveir skólapiltar sáu um að-
drætti og stjórnuðu matarfélaginu, og voru
þeir kosnir af nemendum yngri deildar
vorið áður. Veturinn 1912—’13 stjórnuðu
matarfélaginu frændurnir Ingimar Jó-
hannesson og Guðmundur G. Kristjánsson
frá Meira-Garði í Dýrafirði, en seinni vet-
urinn þeir: Jón Ingólfsson frá Breiðaból-
stað í Reykholtsdal og Júlíus Bjarnason
r^Wfr
Hvanneyri,
F R E Y R
499