Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.12.1972, Qupperneq 44

Freyr - 01.12.1972, Qupperneq 44
frá Hæli í Flókadal. Allir þessir „borð- stjórar", eins og þeir voru kallaðir, unnu verk þetta af mesta dugnaði og samvizku- semi, enda hafa þeir reynzt vel í skóla lífsins og eru þeir allir lifandi enn. Fæðiskostnaðurinn síðari veturinn 1913 —’14, varð heldur hærri, eða kr. 110,55. Þjónustu og matreiðslugjaldið hið sama. Ekki get ég stillt mig um að birta hér listann yfir matföng þau, er við eyddum þessa vetur, þar eð þessi listi mun nú vera í fárra höndum, og væri fróðlegt að fá slíkan samanburð frá skólum nú til dags. Það skal tekið fram, að við vorum vel aldir og yfirleitt voru allir ánægðir með matinn. Ekki veit ég hve mikið umsjónar- mennirnir tóku fyrir verk sitt, og væri það þó fróðlegt. Því hefur vafalaust verið vel í hóf stillt. Listinn nær yfir báða veturna og á síðari talan við matarefni síðari veturinn. 4950 pd. rúgmjöl 6375 pd. 1653 — haframjöl 1500 — 1571 — hveiti II 1700 — 381 — — I 400 — 1097 — hrísgrjón 1200 — 131 — hálf baunir 127 — 145 — sagógrjón 40 — 35 — kartöflumjöl 51 — 700 — salt 800 — 60 — laukur 85 — 495 — steyttur melis 1050 — 300 — púðursykur 350 — 60 — sveskjur 120 — 114 — rúsínur 156 — 22 y2 — kaffi 23 — 9 — kaffibætir 9 — 16 pottar saft 37 pottar 9936 — undanrenna 21910 — 1736 — nýmjólk 490 — 53 — rjómi 40 — 201 Pd. mysuostur 480 pd. 400 — undanrennuostur 251 — 880 — smjörlíki 1050 — 2575 — kartöflur 2880 — 2000 — rófur 2300 — 500 1480 — saltfiskur 1440 — 1840 — sauðakjöt 1943 — 1720 — hrossakjöt 1928 — 423 — mör 283 — 124 — kindaslátur 162 — Verð allrar vörunnar fyrri veturinn nam alls kr. 4.285,68 er skiptist á 42 pilta eða kr. 102,04 í hlut. Verð vörunnar síðari vet- urinn var samt. kr. 5.416,95 er skiptist á 49 pilta, eða kr. 110,55 á hvern. Þess vil ég geta, að þá voru svonefnd bætiefni fæðunnar óþekkt, a. m. k. hér á landi. Það liðu um 5 ár þar til þeirra var getið í riti hér. Þetta var nú nánast útúrdúr. Ég ætla ekki að rita um skólalífið á Hvanneyri, kennsluna og kennarana. Það hefur skóla- bróðir minn Þorgils Guðmundsson, frá Valdastöðum í Kjós, gert með ágætum. ❖ * * Ferðasöguna suður ætla ég að drepa a. Hún var fyrsta sjóferð mín á gufuskipi, dönsku, en af alræmdum viðskiptum og viðmóti skipverja, höfðum við lítið að segja. Við vorum sjálfum okkur nógir með mat og rúmfatnað, og þurftum fátt til skipsmanna að sækja. Skip það, er við fórum með: Vesta, kom aðeins við á Isa- firði. Við vorum þrír í samfloti, Guðmund- ur Guðmundsson frá Sela-Kirkjubóli í Önundarfirði, síðar um áratugi bóndi á Sæbóli hér í sveit, varð okkur samferða til Hvanneyrar. Hann er nú látinn fyrir fáum árum. Annars eru 13 af 19, sem út- skrifuðust frá Hvanneyri vorið 1914, lif- andi enn eftir 58 ár. Við félagar bjuggum um okkur, ásamt fleirum, á milliþilfari, en lestarhlerum lokað. Ljósker logaði í lestinni, svo ekki var dimmt. Margt fólk var einnig í neðri lestinni, og svaf þar í flatsæng. í þeim hóp var Sigurður Skagfield, sem einnig var á leið í Hvanneyrarskólann, en ekki kynnt- F R E Y R
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.