Freyr - 01.12.1987, Blaðsíða 28
Ályktun stjómax Búnaðarsamtaka Vesturlands:
Samdrætti á framlögum til
leiðbeiningaþjónustu mótmælt.
Á fundi 21. október sl. ræddi
stjórn Búnaðarsamtaka Vestur-
lands m.a. skipulag og stöðu leið-
beiningaþjónustunnar á Vestur-
landi og ályktaði eftirfarandi:
„Stjórnin mótmælir algjörlega
þeim niðurskurði á framlögum til
leiðbeiningaþjónustunnar sem
Verktakar
Verkstæöi athugið.
Hendið ekki gamla Land Rovernum. - Við eigum mikið af
ódýrum varahlutum. Bjóðum á hagstæðu verði: Boddý hluti -
Sæti - Klæðningar - Vélahluti - Girkassahluti - Allt i undir-
vagn.
Nýir Land
Rover bilar
7 og IO
manna til
afgreiðslu
strax.
Dísel turbo bílarnir slá i gegn.
Vinsamlega hafið samband og fáið bæklinga
og upplýsingar.
Varahlutaverslun. Simi sólumanns.
96-21365 96-27015
yíöldursf.
Tryggvabraut 10,
símar 21715 og 27015
(Umboösaði'i Heklu h( a Norðurlandi)
Reynslubllar ávallt til reiðu h|á bilaleigu Interrent. Skeifunm 9. Reykjavik
fram kemur í frumvarpi til fjár-
laga fyrir næsta ár og lýsir furðu
sinni á þeirri skammsýni sem þar
kemur í Ijós.
Við breytta búhætti, sem nú
verða í sveitum, er þörfin fyrir
aukna ráðunautaþjónustu Búnað-
arsambandanna meiri nú en áður.
Síðustu tvö ár hefur vinna ráðu-
nauta að mestu leyti verið við mál-
efni tengd framleiðslustjórn og
önnur þau verkefni sem stjórnvöld
hafa falið Búnaðarsamböndunum
í síauknum mæli.
Ekki hefur verið hægt að sinna
ráðgjöf til hvers og eins bónda sem
skyldi, vegna þess að þeir fáu
ráðunautar sem Búnaðarsam-
böndin hafa ráð á, eru ofhlaðnir
störfum.
Búnaðarsamböndunum eru fal-
in ýmis verkefni með lögum og
lagafyrirmæli eru um stuðning
ríkissjóðs við ræktun jarðar og
búfjár með fjárframlögum. Hin
síðustu ár hafa orðið sífellt verri
skil á þessum framlögum til Bún-
aðarsambandanna og hefur það
m. a. þrengt mjög fjárhag Búnað-
arsambandanna og skert getu
þeirra til þess að fást við ýmis
nauðsynleg verkefni.
Búnaðarsamböndin verða að
geta treyst því að ríkisvaldið virði
þessi lög meðan þau eru í gildi og
að ekki sé kippt fótum undan
fjárhag sambandanna um leið og
þeim eru falin aukin verk.
Ekki má slá slöku við ræktunar-
starfið. Sé það gert gengur at-
vinnuvegurinn úr sér.“
Ályktun þessari fylgir áskorun á
Alþingi að efla leiðbeininga-
þjónustuna í landbúnaðinum og
tryggja hag Búnaðarsamband-
anna.
Nágranninn settur í poka.
Á Borgarfirði eystra hefur riðu-
veiki í sauðfé valdið miklu tjóni.
Hefur fé verið fargað og fjárskipti
ráðgerð. Á fundi sem haldinn var
sl. haust voru þessi mál rædd og
m.a. að menn ættu að ástunda
gætni í samgangi milli fjárhúsa og
forðast hugsanlegt smit. Var
stungið upp á því að bændur hefðu
plastpokarúllu við fjárhúsdyr og
byðu hver öðrum að fara í poka á
fæturna áður en þeir gengju í fjár-
hús.
Varð þá Andrési Hjaltasyni,
bónda í Njarðvík þessi vísa af
munni:
Á Borgarfirði brátt verður líft
búið að hreinsa og moka.
Næst mun varúðin notuð stíft
og nágranninn settur í poka.
956 FREYR