Freyr

Volume

Freyr - 15.11.1989, Page 8

Freyr - 15.11.1989, Page 8
haustrúið er, er fé jafnframt tekið á hús á fulla gjöf. Munur er milli landshluta og breytilegt ár frá ári hvenær nauðsynlegt er að taka fé á gjöf. Þar sem óhjákvæmilegt er að gera það snemma á haustin er jafnframt hagkvæmast fyrir bænd- ur að færa sér haustrúning í nyt. Þar sem fé gengur úti fram í desember er haustrúning ekki eins hagkvæm, bæði hvað varðar fóðurkostnað og vinnuaflsþörf. Aðstaða í fjárhúsum er einnig misjöfn. Til að vetrarrúningur geti farið fram þurfa hús að vera einangruð eða á annan hátt sé tryggt að féð fái varist kulda. Þrátt fyrir breytileg skilyrði til fjárbúskapar á landinu og misjöfn sjónarmið bænda er ljóst að skipun Ullarhópsins var tímabær og auka má verulega verðmæti ullar hér á landi. M.E. Leiðrétting við ritstjórnargrein í 20. tbl. í ritstjórnargrein í 20. tbl., „Reglugerð um framleiðslu sauðfjárafurða verðlagsárið 1990- 1991“, er kafli sem misskilja má og jafnvel gætir þar ónákvæmni. Hér er um að ræða neðstu málsgrein í fremra dálki sem hefst á orðunum: „Meginskerðingin, 1,5%, jafnast“ Hér á eftir fylgir efni þessarar málsgreinar orðað upp á nýtt þannig að fram komi hvað rétt er þannig að vonandi misskiljist ekki: Meginskerðingin, 1,5%, skiptist á einstök búmarkssvæði í hlutfalli við allan fullvirðisrétt hvers svæðis í sauðfjárafurðum. Búnaðarsam- band á hverju svæði hefur með höndum það verk að jafna skerðingunni niður á framleið- endur á svæði sínu eftir nánari reglum. Þær reglur eru í fyrsta lagi að nota má fullvirðisrétt sem fallið hefur til viðkomandi búnaðarsam- bands upp í skerðinguna, ef til er. í öðru lagi geta búnaðarsambönd innkallað áður úthlutaðan fullvirðisrétt með leyfi land- búnaðarráðuneytis og notað upp í skerðing- una. í þriðja lagi má skerða fullvirðisrétt með eftirfarandi hætti: Fullvirðisrétt framleiðenda sem byggja af- komu sína að meirihluta á öðru en framleiðslu mjólkur og kindakjöts, annarra en þeirra sem hafa ráðstafað fullvirðisrétti sínum með samn- ingum við opinbera aðila, er þó búnaðarsam- bandi heimilt að skerða um allt að 5% af fullvirðisrétti þeirra til sauðfjárframleiðslu, óháð bústærð. Til nánari útskýringa skal tekið dæmi af bónda sem hefur 500 ærgilda fullvirðisrétt, 400 til mjólkurframleiðslu en 100 til sauðfjárfram- leiðslu. Samkvæmt þesu tapar hann 2% af 100 ærgildum eða 2,0 ærgildum. Með 400 ærgilda heildarfullvirðisrétt og þar af 100 ærgildi til sauðfjárframleiðslu hefði hann hins vegar misst 1,5 ærgildisafurðir. Blaðið biðst velvirðingar á þessum mistök- um. Samanlagður fullvirðisréttur Skerðing að hámarki 440 ærgildisafurðir eða minna 1,5 O/ /o 440,1 - 550 2,0 o/ /o 550,1 - 660 3,0 o/ /o 660,1 - 880 4,0 o/ /o Meiri en 880 ærgildisafurðir 5,0 o/ /o af fullvirðisrétti til sauðfjárframleiðslu ?? ?? 5? 5? ?? 9? ?? ?? ?? ?? ?? ?? ?? ?? ?? ?? 910 Freyr 22. NÓVEMBER 1989

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.