Freyr - 15.11.1989, Qupperneq 26
Agnar Guðnason,
ráðunautur
Hvcrs vcgna ckki markaður?
Hvers vegna reyna framleiðendur ekki að komast milliliðalaust
í samband við neytendur?
Ég hefi undanfarin ár verið að
hugleiða hvers vegna bændur og
aðrir framleiðendur hafa ekki
stofnað til markaðar hér á landi,
hliðstætt og gerist í nær öllum öðr-
um lönduin.
Það hefur að vísu tíðkast um
nokkurt skeið að gengið sé á milli
húsa í þéttbýli og boðið upp á
ýmsan varning svo sem egg, harð-
fisk og garðávexti. Ennfremur er
ekki óalgengt að komið sé með
rækjur og nýjan fisk. Ég held að
flestir, sem staðið hafa í þessum
viðskiptum hafi haldið að þetta
væri ólöglegt og venjulega er verið
að pukrast með þessa sölu við
dyrnar.
Nú veit ég ekkert um lögmæti
þessara viðskiptahátta, en eitt veit
ég og það er að þetta er ekki
skemmtileg aðferð, þ.e. að trufla
heimilisfrið fólks. Gámasalan á
kartöflum er ekki vottur um hag-
ræðingu í sölumálum kartöflu-
bænda. Ef þeir, sem standaígáma-
sölunni eru ánægðir með sinn hlut,
þá er víða pottur brotinn. Ég hefi
fylgst með gámasölunni undanfar-
in ár bæði við Sprengisand og á
Umferðamiðstöðina. Ef sú um-
setning sem er á þessum stöðum
skilar framleiðanda og söluaðila
hagnaði umfram þá sem selja eftir
hefðbundunum leiðum, þá er orð-
ið tímabært að stokka upp í kerf-
inu.
Utimarkaðurá hverjum
laugardegi
í flestunr löndum eru útimarkaðir
á ákveðnum degi og standa yfir
ákveðinn tíma allt árið. Ég hefi
komið á slíka markaði svo til alla
Frá útimarkaði á Benedorm. Parna er verið að selja smákökur. (Ljósmyndir: Agnar Gitðnason)
928 Freyr
22. NÓVEMBER 1989