Freyr - 15.11.1989, Side 13
Þorsteinn Ólafsson, dýralæknir,
Kynbótastöð Suðurlands
Dagatal gangmála og
sæðinga 1990
Síðastliðinn vetur lét Kynbótastöð Suðurlands útbúa nýja gerð af gangmáladagatali. Er
dagatalið gefið útfyrir hvert ár og eru helstu helgidagar og merkisdagar auðkenndir með
sérstökum lit. Að því leyti er dagatalið vel nothœft fyrir hvern sem er.
Stefán Tryggvason, bóndi á Skrauthólum, fœrir inn á dagatalið.
Það sem gerir dagatalið sérstakt er
að hver dagur hefur svolítinn reit
sem hægt er að skrifa í. Dagatalið
byrjar í október og nær yfir 15
mánuði. Það er vegna þess að þar
sem kýr eru snemmbærar þarf að
fara að huga að gangmálum á
fyrstu haustmánuðunum. Mesta
sérstaða þessa dagatals er þó að
hver dálkur í því tekur yfir 3 vikur.
Þannig verður auðveldara að rekja
sig áfram og fylgjast með gangmál-
um kúnna og einnig má nota daga-
talið til að fylgjast með hvort gyltur
og hryssur ganga upp. Þá er á
dagatalinu reitur til að skrá burð-
artíma kúnna.
Dagatal fyrir 1990 er komið út
Dagatalið er sent öllum sæðinga-
mönnunum og er skorað á þá að
koma því til allra kúabænda.
Einnig er hægt að fá það á Nauta-
stöðinni á Hvanneyri, síma 93-
70020 eða á skrifstofu Búnaðar-
sambands Suðurlands, síma 98-
21611. Kostnaðurinn af útgáfunni
er greiddur með sölu auglýsinga á
dagatalinu.
Notið dagatalið
Gangmáladagatal er fyrst og
fremst ætlað fyrir kúabændur til að
hjálpa þeim að fylgjast með gang-
málum og frjósemi kúnna þeirra',
en vissulega er einnig gott að hafa
svona dagatal í gyltuhúsinu. Á
dagatalið er skrifað hvaðeina sem
kemur fram við gangmál kúnna.
Algengast er að nota skammstaf-
anirnar S1 fyrir slím, Y fyrir yxni og
B1 fyrir blóð. Það er mikilvægt að
skrifa sem mest niður um gangmál-
in og helst að hafa stflabók auk
dagatalsins, því að ef kalla þarf til
dýralækni vegna þess að kýr heldur
ekki, getur verið að í stflabókinni
leynist ómetanlegar upplýsingar,
sem annars hefðu gleymst.
Það fyrsta sem þeir þurfa að gera
sem telja kýrnar þeirra haldi ekki
nógu vel, er að Byrja að nota gang-
máladagatal. Þegar það er komið í
notkun, er fyrst hægt að fara að
leysa úr vandanum.
1 Freyr 77. árg, 1981, bls. 25-28.
22. NÓVEMBER 1989
Freyr 915