Freyr - 15.11.1989, Page 24
Ólafur R. Dýrmundsson og
Eiríkur Loftsson, ráðunautar
Tímasctning sæðingaráa með
samstillt gangmál
Á 40. ársfundi Búfjárrœktarsambands Evrópu sem haldin var í Dublin á írlandi 27.-31.
ágúst í sumar lögðu höfundar þessarar greinar fram erindi á fundi sem fjallaði um
sauðfjársœðingar. Erindið sem fáanlegt er í fjölriti heitir á Ensku: „Timing of artificial
insemination in relation to the duration ofoestrus in Icelandic sheep. “ Þaðfjallar einkum
um hérlendar athuganir á heppilegasta sœðingartíma hjá ám og er hér greint frá helstu
niðurstöðunum.
Sauðfjársæðingar í 50 ár.
Síðan Guðmundur Gíslason læknir
hóf sauðfjársæöingar hér á landi í
desember 1939 hafa orðið tölu-
verðar framfarir á þessu sviði.
Hérlendis eru sæðingar sauðfjár
útbreiddari og gegna veigameira
hlutverki en víðast hvar erlendis.
Meðal þeirra nýjunga sem stuðlað
hafa að útbreiðslu sæðinga og hafa
aukið gildi þeirra hér og víða er-
lendis er samstilling gangmála sem
hlaut hér skjóta útbreiðslu eftir
tilraunir Ólafs R. Dýrmundssonar
á Hvanneyri og víðar á 8. áratugn-
um. Um árabil hafa 3-4% áa í
landinu verið sæddar, flestar með
samstillt gangmál. Óhætt er að
fullyrða að sæðingarnar eru einn af
máttarstólpum kynbótastarfsins
og því er brýnt að fylgjast vel með
framförum á því sviði og beita öll-
um tiltækum ráðum til að bæta
árangurinn.
Fremur langt gangmál.
Samhliða tilraunum með samstill-
ingu gangmála kannaði Ólafur R.
Dýrmundsson lengd gangmála áa á
Hvanneyri um miðjan 8. áratug-
inn. Áratug síðar gerði Eiríkur
Loftsson enn ítarlegri og víðtækari
athuganir á þessum eiginleika áa á
sama búi og voru niðurstöður
926 Freyr
þeirra beggja mjög svipaðar.
Gangmál ánna var að meðaltali
tveir sólarhringar, en aðeins rúm-
lega sólarhringur hjá gimbrunum
og hafði samstilling með progesta-
gen svömpum engin áhrif á lengd-
ina. Samanboriðviðerlendfjárkyn
virðast íslenskar ær fremur lengi
blæsma að jafnaði, en þó er það
mjög breytilegt eða á bilinu 24-80
klukkustundir hjá ám í báðum
rannsóknunum. Því miður hefur
ekki verið unnt að gera neinar
rannsóknir hérlendis á egglosi í
tengslum við slíkar athuganir, en
jafnan er gert ráð fyrir að egglos í
ám sé seint á gangmálinu eða
skömmu eftir að því lýkur. Þetta
þarf að hafa í huga við ákvörðun á
ákjósanlegum sæðingartíma.
Tímasetning sæðingar.
Með samstillingu gangmála er
unnt að hafa það mikla stjórn á
22. NÓVEMBER 1989
Fjölmargirþœttir hafa áhrifá árangur sœðinga. Meðal annars ertalið aðgóður
aðbúnaður og gcetileg meðferð ánna bœti fanghlutfallið. (Ljósm. Júlíus J.
Daníelsson).