Freyr

Volume

Freyr - 15.11.1989, Page 14

Freyr - 15.11.1989, Page 14
Benedikt Jónsson, framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs bænda Lífeyrissjóður bænda, staða og framtíðarhorfur Á síðastliðnu swnri vargert tryggingafrœðilegt uppgjörá Lífeyrissjóði bœnda. Athugaðir voru tveir kostir, tveggja prósenta ársávöxtun, þ.e. ávöxtun umfram árlegar launahœkk- anir, ogþriggja prósenta ársávöxtun. Uppgjörið leiddi í Ijós að ífyrra tilvikinu vantar 6,8 milljarða króna, eða um 51% af reiknuðum skuldbindingum sjóðsins, á að höfuðstóll hans, ásamt verðmœti vœntanlegra iðgjalda, nœgi fyrir lífeyrisskuldbindingum. Benedikt Jónsson, framkvœmdastjóri Lífeyrissjóðs bœnda. (Myndir tók M.E.). í seinna tilvikinu vantar hins vegar 4,3 milljarða króna, eða um 41% af reiknuðum skuldbindingum, á að jöfnuður náist. Það vekur at- hygli, hve forsendur um framtíðar- ávöxtun hafa mikil áhrif á niður- stöðu slíks uppgjörs. Þessi staða er slæm og ef til vill verri en hjá mörgum öðrum lífeyr- issjóðum - og þá fyrst og fremst vegna óhagstæðari aldursskipting- ar en gerist hjá öðrum sjóðum. Þegar þessi niðurstaða liggur fyrir er eðlilegt að menn spyrji um ástæður og hugsanleg úrræði. Hér verður reynt að svara þessum spurningum. Til að öðlast skilning á þessum atriðum er nauðsynlegt að rifja upp nokkur atriði úr sögu Lífeyris- sjóðs bænda og lífeyrismála al- mennt á þessum og síðasta áratug. Stofnun Lífeyrissjóðs bænda Lífeyrissjóður bænda var stofnað- ur með lögum nr 101/1970 og tók til starfa í ársbyrjun 1971. Aðdrag- anda að stofnun sjóðsins má rekja allt aftur til ársins 1962, þegar Ing- ólfur Jónsson, þáverandi landbún- aðarráðherra, skipaði þriggja manna nefnd til að gera tillögur um lífeyrissjóð fyrir bændur. A þeim tíma voru lífeyrissjóðir í landinu 916 Freyr rúmlega 40 talsins, aðallega sjóðir opinberra starfsmanna svo og sjóð- ir iðnaðarmanna og nokkurra eldri fyrirtækja. Þegar sjóðurinn tók til starfa, í ársbyrjun 1971 eins og áður sagði, hafði íslenskum lífeyr- issjóðum hins vegar fjölgað í um 90 og munaði þá mest um þá sjóði sem stofnaðir voru í kjölfar samninga Alþýðusambands íslands og Vinnuveitendasambandsins árið 1969. Þeir samningar fólu í sér að öll aðildarfélög ASÍ, sem höfðu ekki þegar stofnað lífeyrissjóði, gerðu það eftir samningana, ýmist hvert fyrir sig eða fleiri félög sam- an. Eftir stofnun Lífeyrissjóðs bænda fjölgaði lífeyrissjóðum ekki neitt að ráði og á síðustu árum hefur þeim raunar fækkað eitt- hvað. Sjóðurinn er því á meðal þeirra yngstu í hópnum. Þegar samið var um stofnun hinna svonefndu “almennu lífeyr- issjóða" í samningum ASI og VSI árið 1969, gaf þáverandi ríkisstjórn fyrirheit um það að hópur eldri félaga verkalýðsfélaganna, þ.e. 22. NOVEMBER 1989

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.