Freyr

Volume

Freyr - 15.12.1989, Page 22

Freyr - 15.12.1989, Page 22
Ólafur R. Dýrmundsson og Sigurgeir Þorgeirsson, ráðunautar Svcigjanlegri kindakjötsframleiðsla Á 40. ársfundi Búfjárrœktarsambands Evrópu sem haldinn var í Dublin á írlandi 27-31. óigúst ísumar lögðu höfundarþessarar greinar fram erindi áfundi sem fjallaði um aðferðir til að hafa áhrifá eða stjórna kynstarfsemi sauðfjár og geitfjár. Erindið sem fáanlegt er í fjölriti heitir á ensku: „Practical possibilities of accelerated breeding within a highly seasonal lamb production system. “ Pað fjallar um hérlendar tilraunir til að auka sveigjanleika í kindakjötsframleiðslu með breytingum á fang- og burðartíma áa og slátrun dilka utan hefðbundinnar sláturtíðar. Er hér greintfrá helstu niðurstöðum og möguleikar á slíkri nýbreytni rœddir. Árstíðabundin framleiðsla Þótt búskaparhættir hafi breyst mikið á landinu, samfara stór- felldri túnrækt og bættri fóðrun undanfarin 40-50 ár, hefur fram- leiðsla sauðfjárafurða verið í svip- uðum farvegi frá því að fráfærur lögðust af og dilkakjötið varð meg- in afurð fjárbænda í byrjun aldar- innar. Nú sem fyrr er sauðburður- inn nátengdur gróandanum, féð gengur að mestu á úthaga sumar- langt þótt töluvert sé beitt á ræktað land vor og haust, og sauðfjárslátr- un er bundin við tiltölulega stuttan tíma á haustin. Þetta er fremur einfalt og árstíðabundið fram- leiðslukerfi sem hefur þann ókost að mest af kjötinu þarf að geyma í frysti um lengri eða skemmri tíma til þess að unnt sé að svara stöðugri eftirspurn markaðarins allt árið. Fitjað upp á nýbreytni í lok síðasta áratugar var Ijóst að viðunandi erlenda markaði skorti fyrir töluverðan hluta kindakjöta- framleiðslunnar og blikur voru á lofti á innanlandsmarkaði. Ymsar hugmyndir voru þá uppi um leiðir til að auka fjölbreytni og verðmæti 1004 FREYR afurðanna og afla nýrra markaða. Sem dæmi um þá viðleitni var til- raun með framleiðslu „páska- lamba“ til útflutnings sem Mark- aðsnefnd landbúnaðarins hafði frumkvæði að. Tilraunin vargerð í Gunnarsholti 1979-1980 undir umsjón Ólafs R. Dýrmundssonar og Sveins Runólfssonar og úr henni komu fyrstu „páskalömbin“ í lok mars og „jólalömbin“ urn miðjan desember 1980. Þau fyrr- nefndu fóru á markað í Kaup- mannahöfn, en hin síðarnefndu í Reykjavík. „Páskalömb“ voru framleidd á fáeinum bæjum í Rangárvallasýslu næstu tvö árin eftir tilraunina og nokkrir bændur á Suður- og Norðurlandi hafa alið rýr vorfædd lömb til slátrunar Ovigestone lykkjur gefa svipaðan árangur og svampar við samstillingu gangmála áa. (Ljósm. Intervet). 24. DESEMBER 1989

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.