Freyr

Árgangur

Freyr - 15.12.1989, Blaðsíða 29

Freyr - 15.12.1989, Blaðsíða 29
frá af öllu hrossakjöti í slátrun. Reynslan frá síðasta ári sýnir ótvírætt að þeir sem kaupa þannig skorið kjöt vilja alls ekki fá neitt annað. Að vera með hvort tveggja í sölu á mismunandi verði ruglar markaðinn og því er nauðsynlegt að fá þessum kjötmatsreglum breytt. IJað hefur ekki orðið en verður vonandi fyrir næstu slátur- tíð, 1990. 5.d. Til að auka söluna á hrossa- kj öti voru í samvinnu við Markaðs- nefnd landbúnaðarins skipulagðar auglýsingar í sjónvarpi sem F.hrb. greiddi að hálfu og eins var ráðist í sérstaka kjötkynningu í verzlunum í tengslum við auglýsingarnar. 5.e. Markaðsnefnd F.hrb. reyndi að leita tilboða hjá slátur- leyfishöfum í slátrun hrossa, sam- kvæmt samþykkt síðasta aðalfund- ar, en varð afar lítið ágegnt í því efni. Upp kom hugmynd um að fara með folaldakjöt í heilum og hálfum skrokkum á markað í Rvík., ásamt með unnu kjöti. t.d. saltkjöti af frampörtum HRI. Rætt var um að þetta yrði heimtekið kjöt úr sláturhúsum, en mörg „Ijón“ virðast enn vera í vegi, sem hindra framkvæmdina. VI. Utflutningurhrossakjöts Síðustu verðlagsár hafa verið flutt út lifandi sláturhross til slátrunar í Belgíu, haustið 1987 voru það 244 hross og 1988 276 hross. Flutnings- kostnaður innanlands og hár flutn- ingskostnaður með skipum gerði þennan útflutning ekki nógu hag- kvæman svo að sýnt var að leita þurfti nýrra útflutningsleiða. í árs- byrjun 1989 var tilkynnt að slátur- hrossasala til Efnahagsbandalags- þjóða væri stöðvuð og þar með var stefnt að hrossakjötsútflutningi til Japans. Útflutningsráð aflaði upp- lýsinga um verð á hrossakjöti í Japan og síðan var leitað til slátur- leyfishafa um samvinnu við þenn- an útflutning um miðjan apríl. Brátt kom í ljós að sömu aðilar og haustið 1986 keyptu af okkur „pistólur" voru tilbúnir til að verzla við okkur. Petta er sama fyrirtækið og hefur keypt hér hval- kjöt og er Jónas Hallgrímsson, hjá Nes hf., umboðsaðili þeirra. Eftir miklar samningaviðræður sem Bú- vörudeild SÍS og F.hrb. átti við aðila var samþykkt að kaupa „fitu- sprengt" hrossakjöt á $5,50 pr. kg en ófitusprengt kjöt á $4 sem væru pistólur, þ.e.a.s. afturhluti kjöts- ins með hryggvöðvum. Kjötið var flutt með flugvélum FedEx (Flying Tigers) til Japan og er flutnings- kostnaður $2,35 á kg. Skilaverð fitusprengda kjötsins er um 80%. Reiknaður var út heildsölukostn- aður af þessu kjöti sem var 245,10 á kg pistólukjöts, en þá voru síðurn- ar verðlagðar á kr. 0 og frampartar á kr. 65 pr. kg. Með þessari verð- lagningu fóru þrjársendingarút; 2. ágúst 2,8 tn; 23. ágúst 3,9 tn og 6. september 4,3 tn. Að þessum til- raunasendingum loknum kom í Ijós að of hátt hlutfall var af ófitu- sprengdu kjöti, sem Japanarnir voru óánægðir með. Var þá verð- lagningu breytt þannig að lægra verð var greitt til sláturleyfishafa fyrir ófitusprengd kjöt eða kr. 200,90 pr. kg og ákveðið að stefna að því að flytja aðeins út 20% af ófitusprengdu kjöti með því fitu- sprengda. Sent var út félagsbréf til allra félagsmanna F.hrb. 5. októ- ber þar sem þessi mál voru m.a. útskýrð, og óskað eftir að hross yrðu sett á betri haga fyrir slátrun til þess að ná mætti betri árangri með fitusprengda kjötið til útflutn- ings. Um miðjan október komu Japanir hingað upp og vildu breyta vinnslutilhögun með því að láta vinna kjötið hér, frysta og senda út í kjötgámum með skipi. Með því inyndi sparast verulegur flutnings- kostnaður, en kaupendur kjötsins á neytendamarkaði í Japan kröfð- ust að fá kjötið áfram ferskt. svo að aðstæður breyttust skyndilega aft- ur. Hins vegar var ákveðið að Japanarnir ynnu kjöt af um 150 hrossum á Blönduósi eða sem svar- aði hreinu kjöti í einn 17 tn kjötgám. Nú er vikulega áætlaður útflutningur á um 6 tn eða af 60 hrossum í pistólukjöti út nóvember og desember. I lok desember er áætlað að pistólukjöt af um 800 hrossum hafi verið flutt út. Þetta kallar á meiri útflutningsbætur en við höfum rétt á samkvæmt bú- vörusamningi, en hins vegar er til þess að líta að ríkissjóður sparar niðurgreiðslur á þetta kjöt sem hefðu numiö um einni milljón kr. og að réttlátt hlýtur að telja að endurgreiða uppsafnaðan sölu- skatt af grunni verðmyndunar í þessum útflutningi, sem næmi einnig um einni milljón kr. Að lokum hlýtur það að koma til skoð- unar að þetta er lang hagkvæmasti kjötútflutningur sem mögulegur er, með skilaverði í heild upp á um 70% þar sem annar kjötútflutning- ur gefur 0-20% í skilaverði til framleiðenda. Frampartarnir hafa verið þyrnir í augum sláturleyfishafa, en í æ stærri mæli hafa bændur sjálfir keypt út framparta af hrossum sínum á 65 kr./kg, sem er þá heim- tekið kjöt án söluskatts. Bændur þurfa síðan að fylgjast með að fá þetta kjöt greitt, en reiknað er með að tveimur mánuðum eftir slátrun geti sláturleyfishafar gert upp 50% verðs af hrossum sem fara í útflutn- inginn og 50% verðs þegar útflutn- ingsbætur fást greiddar í lok janú- ar. I síðustu samningalotunni við Japani í lok október náðist $0.50 hækkun á ófitusprengda kjötið, sem bætir skilaverð þó nokkuð. Að þessum útflutningi hafa Bú- vörudeild Sambandsins og F.hrb. staðið með umboðsaðila, Jónasi Hallgrímssyni, og góðum stuðn- ingi landbúnaðarráðuneytisins og landbúnaðarráðherra, sem m.a. bauð samningsaðilum til hádegis- verðar á viðkvæmri stundu samn- inga, sem áreiðanlega skilaði ár- angri. Er öllum samstarfsaðilum um þetta viðfangsefni færðar kær- ar þakkir, svo og sláturleyfishöf- um, sem hafa staðið vel að þessum útflutningi. VII. Önnurverzlun meðafurðir 7.a. Húðaverzlunin á að fylgja 24. DESEMBER 1989 Freyr 1011

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.