Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 15.12.1989, Qupperneq 34

Freyr - 15.12.1989, Qupperneq 34
Björn S. Stefánsson Þegarhugmyndirráða III A 19du öld breiddist umsköpun atvinnulífsins um löndin. Mest kvað að henni í úrvinnslu hráefna, þ.e. iðnaði. Umsköpunin varfólgin íþvíað vélar voru látnar létta störfin og auka afköstin, en þœr gáfu tœkifœri til stórrekstrar og mannmargra fyrirtœkja sem skákuðu smáfyrirtækjum handverksmanna í samkeppni. Umsköpun landbúnaðar. England var í fararbroddi í þessari umsköpun. Þjóðverjinn Karl Marx (1818-1883) sem samdi margt um þjóðfélagsmál og margir hafa tekið mark á var lengi búsettur í Englandi. Hann þóttist sjá byrjun sömu umsköpunar í Iandbúnaði og var orðin í iðnaði. Hann spáði því að býli bændanna mundu hverfa á sama hátt og smáfyrirtæki hand- verksmanna höfðu þegar horfið í samkeppni við hin stórtækari fyrir- tæki í ýmsum iðngreinum. Það einkenndi löngum þá sem tóku mest mark á Marx að búast við slíkri þróun. Þetta var þróun sem að dómi Marx átti að verða við frjáls viðskipti. Ahangendur hans margir vildu ekki bíða eftir því að markaðsöflin leiddu þróunina, heldur láta stjórnvöld skipuleggja búskap þannig. Slíku skipulagi var komið á í ríki Stalíns og í ríkjum áhangenda hans í Austur-Evrópu, og tókst illa. Betur tókst hins vegar til í ísrael. Þar var reyndar ekki um að ræða að umskapa, heldur að byrja frá grunni með landnámi, og í því tóku aðeins þátt þeir sem kærðu sig um, en flestir gyðingar sem hófu búskap þar í landi kusu sér annan hátt en stórrekstur samyrkjubú- anna. Landnáms- og hernaðarandi ísraelsmanna efldi samheldni á samyrkjubúunum. í Bandaríkjum Norður-Ameríku eru gamalgrón- ar, öflugar samyrkjubyggðir sér- trúarsafnaða, sem afneita í flestu almennum iífsviðhorfum þar Björn S. Stefánsson. vestra með lífsháttum sínum. Þar treystir sértrúin samheldnina. Þar var raunar ekki heldur um að ræða umsköpun búskapar, heldur landnám fyrir daga Karls Marx. Áberandi er að jafnaðarmenn af ýmsu tagi (kommúnistar, sósíalist- ar og kratar) hafa vænzt mikils af tilraunum til slíks stórrekstrar, hvort heldur það var sameining fjósa í Svíþjóð á árunum eftir síðari heimsstyrjöld eða sameiginlegur vélarekstur bænda víða um lönd. í því sambandi má minnast hug- mynda um nýskipan sveitabyggðar hér á landi á tímum seinni heims- styrjaldarinnar. Þar kvað mest að sósíalistum. Sá sem var ráðinn til að hafa þar forystu með stofnun byggðahverfa landnáms ríkisins var þó ekki sósíalisti, en hann hafði mikinn áhuga á málinu, eins og kunnugt var. Fleiri en jafnaðarmenn hafa lát- ið í ljós aðdáun og trú á stórrekstri sem gnæfir yfir rekstur óbreyttra bænda. Hér á landi má þar nefna kúabú kaupmannsins og útgerðar- mannsins Thors Jensens á Korp- úlfsstöðum í Mosfellssveit um 1930. Það rættist ekki að landbúnaður umskapaðist á sama hátt og iðnað- ur. Engu að síður hefur þar orðið stórfelld umsköpun, en hún hefur orðið á hendi bændaheimilanna, sem hafa tekið hvers konar tækni í sína þágu. Tæknin hefur reyndar verið löguð að forsendum þeirra. í iðnaði ýtti samkeppni frá mann- mörgum fyrirtækjum fjölskyldu- fyrirtækjum handverksmanna út. í landbúnaði þrengdu bændaheimil- in hvers annars kost, en þau sem urðu ofan á voru, eins og hin, rekin af bændum og skylduliði þeirra og raunarfáliðaðri en búin voru áður. Þessi þróun hefur verið svo ör, að bændur hafa farið fram úr sjálfum sér. Býlin með mannvirkj- um hafa ekki getað lagað sig að tækninni eftir hendinni. Þess vegna hefur staðan lengi verið sú, að framleiða hefði mátt það sem eftirspurn er eftir með færra fólki, minna landi og færra búfé en bund- ið hefur verið við búskap á hverj- um tíma. Það er misjafnt hvernig menn hafa metið þetta ósamræmi. Sumir hafa lagt það bændum til lasts. Hafa þeir talað um að bændur væru dragbítur á hagvexti. Aðrir hafa talið það sýna hvað þeir hafa verið röskir að taka í notkun af- 1016 Freyr 24. DESEMBER 1989

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.