Freyr - 15.12.1989, Qupperneq 36
Mannabreytingará Tilraunastöðinni á Stóra-Ármóti
Jón Vilmundarson.
Helga Pórisdóttir.
Sigurður H. Magnússon.
Elísabet Axelsdóttir.
Búnaðarsamband Suðurlands rek-
ur Tilraunastöðina á Stóra-Armóti
í Hraungerðishreppi. Það hefur
ráðið þá Jón Vilmundarson frá
Skeiðháholti og Sigurð Helga
Magnússon frá Birtingaholti til að
sjá um daglegan rekstur stöðvar-
innar frá 1. október sl. Konur
þeirra eru jafnframt ráðnar til
starfa að stöðinni en þær eru Helga
Þórisdóttir kona Jóns, og Elísabet
Axelsdóttir, kona Sigurðar Helga.
Tilraunastjóri á Stóra-Ármóti er
Gunnar Ríkharðsson en þar fara
fram tilraunir með fóðrun mjólk-
urkúa.
Góðaveigar
Hafís minnkar
Samspil hafíss við haf og andrúms-
loft er viðfangsefni alþjóðlegrar
ráðstefnu sem haldin verður í
Bergen bráðlega. Tilgangur henn-
ar er að búa til stærðfræðimódel
sem lýsir þessu samspili. Með það
að vopni á að reyna að sýna fram á
hvert ersamhengi útbreiðslu hafíss
og loftlagsbreytinga. Mælingar síð-
ustu 15 ára hafa leitt í Ijós að hafís
þekur nú 5% minna svæði en fyrir
15 árum. (Norinform nr. 35189).
Snigill erfiskur
Snigill er fiskur, þótt hann lifi á
þurru landi. Það hefur oddviti
landbúnaðarnefndar EB, írinn
Ray Mac Sharry, úrskurðað.
EB-þingmaðurinn Andrew
Pearce spurðist fyrir um hvort
landbúnaðarnefndin flokki snigla
sem kjöt eða fisk. Hann fékk það
svar að til hægðarauka heyri snigl-
ar til sameiginlegri fiskveiðistefnu
EB. Þess vegna sé engin sérleg
skilgreining á sniglum til í reglum
þess. Frá þessu greinir í Lands-
bladet.
Að afloknum aðalfundi Stéttar-
sambands bænda á Hvanneyri í
september sl. var fulltrúum og
gestum boðið til veislu þar sem
Búnaðarsamband Borgarfjarðar
stóð fyrir dagskrá undir stjórn
Bjarna Guðráðssonar í Nesi, for-
ntanns sambandsins.
Meðal dagskráratriða var að
Sveinbjörn Beinteinsson, allsherj-
argoði á Draghálsi, kvað rímur.
Að því loknu settist Sveinbjörn í
sæti sitt við hlið Hálfdáns Björns-
sonar á Hjarðarbóli, formanns
Búnaðarsambands S-Þingeyinga.
Hálfdán bauð Sveinbirni þá í
glas sem hann þáði. Um leið og
Hálfdán færði honum glasið lét
hann fylgja með eftirfarandi vísu:
Bakkus veltir boðanum,
bleytir loðið trýni.
Gömium kenni ég goðanum
að geifla á brennivíni.
Sveinbjörn svaraði:
Vínið sem þú veittir inér
veikir ekki trúna.
Bakkus er til húsa hér,
hvar er Freyja núna?
(Biri í samrádi við höfunda).
1018 Freyr
24. DESEMBER 1989