Freyr

Árgangur

Freyr - 15.03.1990, Blaðsíða 22

Freyr - 15.03.1990, Blaðsíða 22
Vélar& l~ZZ þjónusta hf 3WStMEiJSlMK 1. tölublaö 2. árgangur 1990 20% verðlækkun á Warfama sturtuvögnum Warfama flutningavagnarnir hafa nú veriö seldir hér á landi í nokkur ár og hefur salan á þeim fariö langt fram úr öllum vonum. Warfama flutningavagnarnir eru seldir í tveimur stæröum, meö þriggja og sjö tonna buröargetu. Stærri vagn- inn er á tvöfaldri velti- hásingu og meö sjálf- stæöa fjöörun. Báöar geröir eru meö tvöfalda upphækkun á skjólborö- um, fullan ljósabúnaö, yfírstærö af dekkjum, vökvabremsur, hliöarsturt- ur og margt fleira. Þessir vagnar hafa veriö mikiö keyptir til flutninga á rúlluböggum. Veröiö á þessum vögnum hefur þótt meö því hagstæöasta sem sést hefur hér á landi um árabil, en nú lækkar þaö enn frekar því 24.5% viröisaukattur sem nú er kominn í staö söluskatts áöur, er frádráttarbær og endurgreiddur ef útskattur er ekki á móti. Nýji skatturinn lækkar því raunverö á Warfama sturtuvögnum um tæp 20%. Ný blásin Agri Stretch pökkunarfílma Á síöasta ári hófu Vélar og þjónusta hf. sölu á Agri Stretch pökkunarfilmu. Á árinu 1990 er boöiö upp á nýja og endurbætta framleiöslu á Agri Stretch pökkunarfilmunni. Þessi nýja fílma er framleidd í nýjum og mjög fullkomnum tækjabúnaði sem blæs upp filmuna, en áöur var hún fram- leidd á völsum. Aöalmunurinn á þessum framleiösluaöferöum er sá aö blásin filma er miklu sterkari, en samt mýkri og þolir því meiri teygingu án þess aö slitna eöa missa teygni sína. Agri Stretch fílman er þriggja laga og hvít, sem gerir þaö aö verkum aö hún endurkastar vel útqólubláum geislum sólar og hitnar því rúllan minna en ella. Varanleg teygni og góö límingin sjá til þess aö gæöi fóöurs veröur alltaf í hámarki. Allar Agri Stretch plastrúllur eru vaföar á plastkjarna og fes- tast því ekki í pökkunarvélinni eins og plastrúllur meö pappa- kjarna eiga til aö gera. Hver plastrúlla er afgreidd sér í kassa. Unterland sérhæfir sig í fram- leiðslu á allskonar plastvöru og rekur tvær aörar mjög stórar plastverksmiðjur í sömu grein í V-Þýskalandi. Vélar og þjónusta hf. hafa náö mjög góöum samningum um verö á Agri Stretch pökkunar- filmunni og bendir þeim aðilum sem hyggja á kaup á verulegu magni af plastfilmu til notkunar næsta sumar á aö hafa sam- band sem fyrst, því fyrirhugaö er aö bjóöa sérstakan magn- afslátt sem vafalaust á eftir aö koma á óvart.

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.