Freyr - 15.03.1990, Qupperneq 29
Skjaldfönti í Nauteyrarhreppi. Túnið vafið sóleyjum.
stefnu og honum til hægri handar
einn aðalhöfundur Jónsfársins.
Af þessum sveitum þarf að létta
helfjötrum þess og raunar víðar,
landsframleiðslan mundi ekki
aukast svo að neinu næmi fyrir því.
Við erum raunar nú, svo að not-
uð sé söguleg hliðstæða, farþegar í
dauðalest Bændahallarvaldsins á
fleygiferð til útrýmingarbúðanna
án þess að hreyfa legg né lið til að
hindra þau endalok, enda dreifðir,
innbyrðis sundurþykkir og haldnir
furðulegri undirgefni gagnvart
þeim sem málum okkar ráða.
Þú minnist þess e.t.v. að í fyrra
sagðist ég vænta mikils af félaga
Steingrími og fór með vísu
Strandamannsins:
Bændur hallast, byggð er veik
bregðast allar glímur.
Nú þarf snjallan næsta leik
nýi Skalla-Grímur.
Svo sönn og þörf sem hvatning
var fyrir ári er hún það langtum
frekar nú. Því miður fer lítið fyrir
snjöllum leikjum ráðherrans
ennþá.
Man ég það ekki rétt að hann
sitji í ríkisstjórn sem kennir sig við
jafnrétti og félagshyggju? Sé svo,
væri ráð að hann færi að láta til sín
taka það misrétti og þá sérhyggju
sem veður uppi í málefnum bænda.
Það kann að vera að Steingrími
láti betur að knésetja þær konur
sem komist hafa til nokkurra met-
orða í okkar flokki en að bretta
upp ermarnar, fara í vaðbrækur og
moka fjós fyrirrennara síns í emb-
ætti landbúnaðarráðherra, en það
má hann vita, hér og nú, að ég og
mínir líkar vilja fara að sjá „snjalla
leiki“, annars sitjum við heima eða
kjósum „kvennó" í næstu kosn-
ingum.
Eins og ég sagði þér í fyrra er Jón
Baldvin náfrændi minn og ég er
ákaflega upp með mér af því, þó að
hann sé nú bölvaður hrökkáll í
málefnum landbúnaðarins.
Fyrir röskum áratug, er Jón var
skólameistari á ísafirði, hellti hann
sér líka út í bæjarmálapólitíkina og
varð brátt störfum hlaðinn þar.
Aðspurður hvort þetta kæmi nú
ekki niður á menntaskólanum,
svaraði Jón: „Það eru nú 24 tímar í
sólarhringnum“. En auðvitað
dugðu þeir ekki til að halda uppi til
lengdar dampi á báðum vígstöðv-
um.
Ég gæti trúað að Jón hafi á ríkis-
stjórnarfundi í haust laumað þess-
um „sannindum" af hreinum
prakkaraskap yfir borðið til Stein-
gríms J.
Því óttast ég og þykir sárt til þess
að vita, ef það verða eftirmæli
S.J.S. sem landbúnaðarráðherra
að hann hafi verið upptekinn við
að kortleggja ört vaxandi sprungu-
svæði í Alþýðubandalaginu á með-
an byggðir eins og hér við Inn-
Djúp og heimahagar hans sjálfs,
urðu eyðingunni að bráð.
Enginn efi er á að með því að
flýta jarðgangagerð á milli ísa-
fjarðar og nálægra þéttbýlisstaða
eins og samgönguráðherra S.J.S.
nú boðar, er verið að styrkja bú-
setu á því svæði mjög mikið.
Ekkert mundi vera betur til þess
fallið að draga úr fólksflótta úr
vestfirskum sveitum og snúa þar
vörn í sókn, en að landbúnaðar-
ráðherra S.J.S. skæri okkur bænd-
ur hér niður úr kvótasnöru Bænda-
hallarvaldsins.
Og síðan ætti Steingrímur að
láta skörungskonunni Svanfríði
eftir Norðurland eystra, en fara
fram hér á Vestfjörðum í næstu
kosningum. Hann mundi fljúga
inn.
Nú er mál að linni, Matthías
minn, og ég veit að þú ert dapur
yfir því hvað ég er neikvæður og
andkaldur í garð þinna húsbænda,
en það er nú með þá eins og Kiljan
sagði um Esjuna, hún er öðruvísi
aðsjáúrKjósinnien Reykjavík.og
þó er þetta sama fjallið.
Ég er þó að vona, verði ég allra
karla elstur, að mér megi auðnast
áður en líkur að skrifa þér eitthvað
jákvætt um bændaforustuna.
Og svona í lokin, til að enda eins
og byrjað var, er hér vísa, gerð í
orðastað Jóns frænda eftir Vest-
mannaeyjafundinn, sællar minn-
ingar.
Ef bóndi minn, hokrarðu þrjóskur
og þrár
er þarflaust að blása í kaun,
því kerfið mun rétta þér ár eftir
ár,
sem ölmusu, ráðherralaun.
í annarri viku þorra 1990.
Indriði Aðalsteinsson,
Skjaldfönn.
6, MARS 1990
Freyr 229