Freyr - 15.03.1990, Blaðsíða 20
]Vélar& i FkhJ I Ahki-'j-'
þjónusta hf 1 tölublaö 2 árgangur 1990
Ný gerð af Case IH dráttarvél
Case IH 985 XL dráttaivél
Á Smithfield landbúnaðar-
sýningunni í desember 1989
var kynnt viðbót við CASE IH
fjöldskylduna, Case IH 985.
Þessi nýi fjöldskyldumeðlimur
er 90 hestöfl og hægt er að fá
hann með L eða XL húsi og
með eða án framdrifs.
Búnaðurinn sem i boði verður
á þessari vél hér á landi verður í
sama staðli og hefur verið á þeim
CASEIH dráttarvélum sem boðið
hefur verið upp á til þessa úr 85
línunni, en þær vélar eru með
flestum þeim aukabúnaði sem
völ er á.
í þessum aukabúnaði má nefna
rafstýrðan vökvamilligír, læst
framdrif með rafinnsetningu,
lyftutengdan dráttarkrók meö
viðvörun, tvö tvívirk vökvaúrtök,
vinnuljós framan og aftan, fram-
bretti á framdrifsvélum, hús af
lúxus gerð meö sléttu gólfí,
lituðu gleri, sóllúgu, útvarpi og
fleira.
Á árinu 1990 verðurboðið upp
á enn einn nýjan kost í
aukabúnaði á Case IH, en það
er vendigír á gírkassa sem þá
verður meö átta gíra áfram og
átta gíra afturábak. Þessi kostur
verður í boði á Case IH 685,785,
885 og nú 985.
Þessi nýji kostur Case IH 985
gefur enn betri möguleika en
áður á að velja þá dráttarvél sem
hentar.
Nýr vendigír á Case IH
dráttarvélum
Ný Krone rúllubindivél
KRONE KR130 rúllubindivél
Á árinu 1990 kynnum við nýja
gerð af KRONErúllubindivél, en
hönnunin á þessari nýju gerð er
byggð á sömu grundvallar-
atriðum og gerðu KRONE KR
125rúllubindivélinaeins vinsæla
og raun bar vitni. Þar má meðal
annars nefna færibandið sem
gengur innaná og utaná bagga-
hólfinu,en þessi útfærsla hefur
gefið meiri þjöppun við miklu
minni aflnotkun en áður hefur
þekkst. Þrýstimælar á báðum
hliðum gera það að verkum að
alltaf er hægt aö fylgjast með því
að lögun rúllubaggans sé jöfn
beggja megin og beisli er hægt
að tengja hvort sem er á
lyftutengdan dráttarkrók eða
krók fyrir ofan aflúrtak.
Þessi nýja gerð hefur ýmsan
búnað sem Krone KR125 rúllu-
bindivélin hefur ekki. Af þeim
búnaði má nefna tvíbindikerfi,
sjálflosunarbúnað (sparkara),
rafbúnað sem gefur merki við
lok bindingar, galvaníseraða
sópvindu og síðan er boðið upp
á rafstýribúnað á alla vélina.