Freyr - 15.06.1990, Blaðsíða 24
GunnarM. Jónasson,
forstöðumaður Byggingastofnunar landbúnaðarins
Byggingastofnun landbúnaðarins
hættirstörfum
A fundi sínum hinn 22. janúar 1990 ákvað stjórn Stofnlánadeildar landbúnaðarins að
segja upp öllu starfsfólki Byggingastofnunar landbúnaðarins frá og með 1. febrúar með
sex mánaða fyrirvara. íþessari samþykkt fólst sú ákvörðun að hœttskyldi allri starfsemi
stofnunarinnar hinn 31. júlí, 1990.
Starfsemi BL var bundin í lögum,
en 15. maí sl. samþykkti Alþingi
lög um Búnaðarmálasjóð, þar sem
í eftirmála er gert ráð fyrir að
þjónustuverkefni BL flytjist til
Búnaðarfélags íslands, en rann-
sóknaverkefni til Rannsóknastofn-
unar landbúnaðarins. Þau lög taka
gildi 1. september 1990.
Byggingastofnun hættir því
raunverulega starfsemi 31. júlí nk.
og verður formlega ekki til eftir 1.
september. Ekki hefur verið tekið
á móti nýjum verkefnum síðan í
mars, en reynt er að vinna sem
mest úr þeim verkbeiðnum, sem
fyrir lágu.
í uppsagnarbréfi til starfsfólks er
gefin upp sem ástæða, „að ekki sé
þörf á sérhæfðri teiknistofu, hægt
sé að fá sambærilega þjónustu ann-
ars staðar."
Bráðlega lýkur því 61 ár sögu
Byggingastofnunar landbúnaðar-
ins. Hún var stofnuð með lögum
nr. 35/1928 og tók til starfa árið
1929. Upphaflega hét hún Teikni-
stofa Byggingar- og landnáms-
sjóðs. Árið 1936 varð til Teikni-
stofa nýbýlastjórnar, sem ásamt
Teiknistofu Búnaðarbankans, sem
starfað hafði í eitt ár, varð að
Teiknistofu landbúnaðarins árið
1938. Því nafni hélt hún þar til
heitið Byggingastofnun landbún-
aðarins kom til árið 1972. Þrátt
fyrir nafngiftina Byggingastofnun
gekk stofnunin ætíð undir heitinu
Teiknistofa, enda sá þjónustuþátt-
Gunnar Jónasson.
ur drýgstur í starfi hennar, þótt
víða hafi verið við komið á sex
áratugum.
Vonandi gefst tækifæri síðar til
að rekja sögu teiknistofunnar, en
hér er aðeins ætlunin að koma á
framfæri upplýsingum um breyt-
ingarnar, þannig að mönnum gef-
ist ráðrúm til að leita annað með
þau verk, sem við höfum hingað til
unnið. Það er augljóst, að áfram
verður haldið að teikna alls kyns
hús í sveitum. Þó svo að erfiðleikar
ríki um sinn í landbúnaði, er engu
að síður allmikið byggt, mikið af
endurbótum og nokkuð af nýju.
Vegna íbúðarhúsa verða bænd-
ur framvegis að leita eftir teikning-
um á sama máta og aðrir lands-
menn; hjá arkitektum, verkfræð-
ingum og öðrum þeim, sem hafa
slíka þjónustu með höndum á hin-
um almenna markaði. Vegna
teikninga að útihúsum geta menn
einnig leitað til Búnaðarfélags
íslands, sem hefur nokkuð aukið
við umsvif bygginga- og bú-
tækniráðunautar í kjölfar þess að
BL hætti.
Nú er lokið þætti Byggingastofn-
unar landbúnaðarins. Ég þakka
hinum fjölmörgu viðskiptavinum
stofnunarinnar fyrir samstarfið.
Vorverk sf
Æðarrœktendur athugið!
Hjá okkur fœst œðardúnninn hreinsaður og fjaðratíndur. Leitið
upplýsinga í síma 94-8227 eða sendið línu.
Vorverk sf-Dúnhreinsun
Lœk, Mýrahreppi
471 Þingeyri
488 Freyr
12, JÚNl 1990