Freyr

Árgangur

Freyr - 15.06.1990, Blaðsíða 11

Freyr - 15.06.1990, Blaðsíða 11
Séð yfir Hákonarstaði á Jökuldal, Klaustursel til vinstri. Þetta er rétt og þarna hefur aðeins ein jörð farið í eyði sem er byggileg á annað borð. Skýringuna kann ég ekki. Það er ákveðinn sveitar- mórall þarna hjá okkur, fólk er ánægt með að búa á Jökuldal og með samfélagið í heild. Ef skoðað er dýpra ofan í kjölinn þá hef ég haldið því fram að það sé aðstaða okkar í skólamálum og framsýni og dugnaður okkar manna sem börð- ust fyrir því að byggja skólann á Skjöldólfsstöðum sem er grunnur- inn að því að byggðin helst í þessari sveit. Oll félagsstarfsemi okkar er einnig þarna og þetta tengir fólkið saman. Svo hafa kannski samgöngur batnað? Já, þær hafa vissulega batnað. Ár- ið 1975 tengist svo síðasti bærinn inn á samveiturafmagn. Það er ekki lengra síðan. Svo er kominn einkasími? Já, en sveitasíminn var nú kvaddur með dálitlum söknuði. Meðan hann var, þá vissu menn hvað var að gerast á bæjunum og fylgdust betur með. Menn hafa annars verið ákaf- lega ófeimnir við að ræða sín mál upphátt á Jökuldal og ekki hikað við það á þorrablótum að láta allt flakka um náungann, sé það innan velsæmismarka. Þú ertformaðurstjórnar Búnaðarsambands Austurlands? Já, ég tók við því starfi í júlí 1988. Umfangsmesta mál á könnu BSA er og hefur verið framleiðslu- stjórnun. Þar hafa komið upp ýmis ágreiningsefni sem tekið hafa tíma og krafta frá öðrum verkefnum. Mér virðist þó að þessi mál hafi verið að minnka að umsvifum að undanförnu. Austurland hefurorðiðfyrir miklum niðurskurði vegna riðuveiki á síðustu árum. Hvar er það mál á vegi statt? Það er búið að slátra öllum hjörð- um sem staðfest hefur verið riða í, auk þess sem búið er að hreinsa svæðið úr Reyðarfjarðarbotni að Lagarfljóti um Gilsá, sem er á milli Skriðdals og Valla. Það eru Reyð- arfjarðar-, Helgustaða-, Norð- fjarðar-, Mjóafjarðar-, Seyðis- fjarðar-, Borgarfjarðar-, Hjalta- staða-, Eiða-, Egilsstaða- og Valla- hreppar. Að vísu eru örfáar kindur í girðingu að Mjóanesi í Valla- hreppi. Áuk þess hafa verið teknar ein- stakar hjarðir sunnar, t.d. er í Breiðdal búið að lóga flestöllu fé. Að lokum má nefna að það er búið að skera niður á mörgum bæjum í Aðalsteinn í Klausturseli með börn- um sínum, Henný Rósu, Sigmari Jóni og ívari Porgeiri, þeim yngsta. Fljótsdal, Fellum og á Jökuldal, tæp 9000 fjár, þar sem riðutilfelli hafa komið upp. Við erum með bundið í samningum um niður- skurð vegna riðuveiki 37% af öll- um sauðfjárrétti á svæði Búnaðar- sambands Austurlands, til tveggja og þriggja ára. Hvað gerist nú í framhaldi af þessu? Það verður vonandi stærri hlutinn af þessum fjáreigendum sem hefur sauðfjárbúskap að nýju. Við höf- um verið að leika okkur að tölum, og gert ráð fyrir að af þessum 190 bændum sem eru með niðurskurð- arsamninga taki um 2/3 aftur fé. Þessir bændur eru með að meðal- tali 170 ærgildi. Ef við segjum að það byrji 120 bændu aftur og fái allan fullvirðisrétt sem nú er í leigu, þá eru það ekki nema um 270 ærgildi á bónda. Af því má sjá hver lífsgrundvöllur er í sauðfjár- ræktinni á Austurlandi, eins og málin horfa núna. Ath: Eftir að viðtalið var tekið hefur verið ákveðið að skera niður allt sauðfé á svœðinu á milli Lagar- fljóts og Jökulsár á Dal. Á þessu svœði voru um sl. áramót 13.345 fjár á 55 býlum, þar afvar ákveðin förgun á 1396 kindum á fjórum búum vegna staðfestar riðuveiki. 12, JÚNl 1990 Freyr 475

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.