Freyr

Árgangur

Freyr - 15.06.1990, Blaðsíða 20

Freyr - 15.06.1990, Blaðsíða 20
ýmsir aðrir fyrirvarar varðandi takmarkanir á fjárfestingu er- lendra aðila, sem nú eru í lögum í EFTA-ríkjunum. Fulltrúar EFTA-ríkjanna hafa hins vegar lýst sig reiðubúna til viðræðna um málið á almennum grundvelli og skýrt var frá því að breytingar varðandi heimildir rík- isborgara EFTA-ríkja til verð- bréfakaupa og annarra fjárfestinga utan landamæra heimaríkis væru nú til athugunar í öllum ríkjunum og að hluta til nýlega komnar til framkvæmda. Erlendarfjárfestingará íslandi. í tengslum við samningsgerð yrði nauðsynlegt að setja nýjar reglur með almennri löggjöf um heimildir erlendra aðila til fjárfestingar hér- lendis og tækju reglurnar til ýmissa þeirra atriða, sem nú eru óljós. Ljóst er að þær reglur, sem gilt hafa um fjárfestingu erlendra aðila hér á landi hafa í framkvæmdinni verið að sljóvgast eftir því sem fleiri göt hafa fundist á þeim. Má þar t.d. nefna víðtæka eignaraðild erlendra aðila í fiskeldi hérlendis sem virðist í andstöðu við þær regl- ur, sem gilda á öðrum sviðum. EFTA - þjóðirnar hafa marga fyrirvara varðandi beinar fjárfest- ingar erlendra aðila. Af íslands hálfu hefur verið gerður fyrirvari varðandi erlendar fjárfestingar sem beinast að nýtingu náttúru- auðlinda svo sem fiskveiða, nýt- ingu orkulinda og í fasteignum svo sem bújörðum. Um fjárfestingu íslenskra aðila erlendis er það að segja, að fjár- festing í fyrirtækjum erlendis hefur í nokkrum tilvikum verið leyfð. Hefur þar einkum verið um að ræða fyrirtæki, sem hafa átt að auðvelda útflutning á íslenskum vörum og þjónustu. Nú starfa 1500-1600 manns í slíkum, „ís- lenskum“ fyrirtækjum erlendis. Hvað varðar heimildir til verð- bréfaviðskipta milli íslands og annarra ríkja má búast við vaxandi þrýstingi innlendra aðila á að þær verði rýmkaðar. Par má m.a. nefna lífeyrissjóðina sem hafa þörf fyrir ávöxtun fjármuna í einhverj- um mæli óháð sveiflum í hinu ís- lenska hagkerfi. Heimildir: Alþingistíðindi Reglur EB o.fl. gögn Til sölu heyhleðsluvagn, 34 m3 og súgþurrkunarblásari, H-22 og þriggja fasa mótor. Sími 93-41258. Orðsending til íslenskra bœnda Við undirritaðir umboðsmenn búvéla getum boðið íslenskum bœndum eftirtaldar vélar og tœki: Frá Kverneland: Plóga, steinatínur, herfi og sláttuvélar. Frá Reime: Innbúnað í fjós og fjárhús, ristar, fóðrunarbúnað, loftrœsti- kerfi, áburðarbúnað og -tœki og mjaltakerfi. Frá Ursus: Ursus er Massey Ferguson dráttarvél sem er framleidd í Póllandi. Hafið samband, án skuldbindinga. P/f S.A.P. Svejs, Sími 90 298 19987, Telefax 90 298 18824 Postboks 2217, Fr- 165Argir Fœreyjum. 484 Freyr 12, JÚNl 1990

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.