Freyr

Árgangur

Freyr - 15.06.1990, Blaðsíða 10

Freyr - 15.06.1990, Blaðsíða 10
Ég hef byggt upp aðstöðu mína þannig að ég geti tekið á móti vondu vori, en í verri vorum, snjó og ótíð, þá er einasta hættan að sjúkdómar komi upp og vanhöld í framhaldi af því. Er af lagt á Jökuldal að stefna að því að hafa ærnar einlembdar, og sleppa fénu snemma og láta það bjarga sér um burð? Það er alveg aflagt að sleppa ám fyrir sauðburð, enda hafa vor nú síðustu ár flest verið köld og snjó- þung. Samt er nokuð um að menn byggi á útbeit en flestallir reyna að ná sem mestum afurðum á kind. Það er töluvert um að menn láti féð ganga sjálfala á afrétt frarn eftir hausti, fram í desember, enda hafa verið góð haust nú þrjú ár í röð. Aðalsteinn og Ólafía í miðju. Til vmstri Guðrún Aðalsteinsdóttir og Jón Jónsson, foreldrar Aðalsteins og til hœgri Sigríður Pétursdóttir og Sigmar Sigfússon, foreldrar Ólafíu. Sigríður heldur á Ivari Þorgeiri Aðalsteinssyni og myndin er tekin við skírn hans. búinu. Ég tel mig ná þeim með góðri fóðrun, sjá til þess að féð leggi ekki af á haustin og fá sem flest tvílembt. Ég er hins vegar hættur að nota fengieldi að ráði. Ég hef þó gefið örlítið af fiskimjöli á fengitíð þangað til í vetur að ég gaf ekkert nema hey. Ég hef ekki gefið neitt innflutt kjarnfóður í mörg ár, en gefið töluvert af fiski- mjöli yfir veturinn. Auk þess hef ég nú í nokkur undanfarin vor gef- ið heyköggla, blandaða með fiski- mjöli, sykri og steinefnum. Ég hef keypt þá af Þorsteini Geirssyni á Reyðará. Þetta fóður hefur komið vel út. Ég hef látið bera snemma, nálægt því einu gangmáli fyrr en tíðkast hefur í kringum mig og tel að þar liggi stór hluti af afurðasem- inni hjá mér. Ég byrja á að fara með hrút um 10.-12. desember. Ég held nákvæmt bókhald yfir mitt bú og ég hef slegið á að það muni þetta 3-4 kg af kjöti eftir ána að flýta burðinum, en aukinn fóð- urkostnaður á á er andvirði um eins kg af I. fl. kjöti þennan hálta mánuð sem ærnar eru fóðraðar lengur eftir burð. Hefur þú aldrei lent í það vondu vori að þetta hafi ekki borgað sig? Eru vandamál að ná fénu þá saman? Það getur verið það og var t.d. í vetur. Það síðasta náðist þá ekki fyrr en um 20. janúar. Vegna þess hvað tíðin var góð þá dreifðist féð um allar afréttir. Það eráberandi, hve Jökuldalur heldur sínum hlut beturen margar aðrarsveitirá Fljótsdalshéraði. Kanntu skýringu á því? Brúin á Jökulsá á Dal við Klaustursel. New York árið 1906. Hún er byggð árið 1908, en smíðuð í 474 FREYR 12.JÚNÍ 1990

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.