Freyr

Volume

Freyr - 15.06.1990, Page 29

Freyr - 15.06.1990, Page 29
Á fundi Framleiðsluráðs landbúnaðarins 14. júní sl. gerðist m.a. þetta: Tryggingabæturfyrirsauðfé sem ferstá þjóðvegum 1990. Lagt var til að eftirfarandi trygg- ingabætur yrðu greiddar fyrir sauðfé sem ferst á þjóðvegum árið 1990: kr. 1. Tvílembingur .............6.200 2. Einlembingur..................7.600 3. Veturgamalt fé ..............10.000 4. Fullorðinærtiljúníloka.....10.000 5. Fullorðinærfrá 1. ágúst.......7.300 6. 1. verðlauna hrútur..........16.500 7. Aðrir hrútar en undir 3. og6. lið...................3.600 Að loknum kjarasamningum óskaði Stéttarsamband bænda eftir því að Verðlagsstofnun annaðist verðgæslu með þeim aðföngum sem bændur nota við sína fram- leiðslu. Hefur stofnunin fylgst með verði á allmörgum afðföngum og birtir nú samanburð á verðinu á nokkrum fóðurvörum og bygging- arvörum eins og það var um mán- aðamótin maí/júní sl. Mun stofnunin birta kannanir á fleiri vörutegundum þegar lengra líður á sumarið. I könnuninni kemur fram: - Mikil verðmunur er á einstök- um vörutegundum eftir sölu- stöðum. Má sem dæmi nefna að eitt tonn af fiskimjöli kostar 30.503 kr. þar sem það er ódýrast en 52% meira eða 46.314 kr. þar sem það er dýrast. - Fimm lítrar af hreinsuðu fóð- urlýsi kosta 707-936 kr. (32,4% verðmunur). - Eitt kg af girðingarlykkjum kostar 230-365 kr. (58,7% verðmunur. Alls náði könnun Verðlags- stofnunar til 26 sölustaða víðs veg- ar á landinu. Fréttatilkynning frá Verðlagsstofnun. 12.JÚNI 1990 Hækkunin á milli ára, 10,0%, er í samræmi við hækkun á verðlags- grundvelli sauðfjárafurða frá 1. júní 1989 til 1. desember 1989. Kostnaður við mjólkurflutninga að samlagi árið 1989. Lagt var fram yfirlit um kostnað við mjólkurflutninga að samlagi árið 1989. Framleiðsluráð sam- þykkti að leggja til við landbún- aðaráðuneytið að jafna skuli flutn- ingskostnaði þar sem hann fer yfir kr. 2,40 á lítra. Eftirfarandi samlög höfðu flutn- ingskostnað umfram kr. 2,40 á lítra: Kostnaður pr. ltr. Samlag umfram 2,40 ísafjörður................ 4,1360 Þórshöfn............... 1,4966 Egilsstaðir............... 0,1951 Neskaupstaður............. 1,0209 Höfn ..................... 0,1475 Málefni eggjaframleiðslu. Upplýst var að birgðir eggja hafa farið vaxandi undanfarna mánuði. Fram kom að nokkuð er um að seld séu egg sem framleidd eru utan endurgreiðsluréttar. Kynnt var bréf sem Félag eggjaframleið- enda hefur sent landbúnaðarráðu- neytinu þar sem lýst er áhyggjum af þessu og óskað er aðgerða ráðu- neytisins í málinu. Þing Alþjóðasambands búvöruframleiðenda í Þrándheimi 4. - 8. júní 1990. Lagðar voru fram ályktanir og ýmis gögn frá 29. þingi Alþjóða- sambands búvöruframleiðenda, IFAP, sem haldið var í Þrándheimi dagana 4. - 8. júní sl. Meðal fjölmargra mála sem þar var fjallað um var staðan í samn- ingaviðræðum Alþjóða tolla- bandalagsins, GATT. Undirstrik- að var hve efnahagur einstakra ríkja væri sífellt háðari efnahag annarra ríkja. Öryggi í fæðuöflun, viðskipta- og skuldakjör og að- gangur að mörkuðum fléttast sam- an. Lögð var áhersla á hve mikil- vægt væri að heilbrigt efnahagslíf skapaðist í þróunarlöndum sem byggju oft við afar lágt verð á afurðum sínum, t.d. kaffi og kakói. Fram kom að þurrkar í N.-Am- eríku árið 1988 höfðu í för með sér að kornbirgðir Bandaríkjanna minnkuðu úr 204 milljón tonnum í 66 milljón tonn árið 1990, (áætl- að). Bent var á að bilið á milli hæfi- legs varaforða og skorts sé mjög þröngt. Loftslagsbreytingar geta á skömmum tíma valdið skorti. Vakin var athygli á að víða um heim er hlutur kvenna í landbún- aði mikill en þess sjást lítil merki á ráðstefnum um landbúnað. Lagt var til hlutur kvenna á fundum IFAP yrði stóraukinn. Af hálfu íslands sóttu fundinn þeir Gísli Karlsson, Haukur Hall- dórsson, Hörður Harðarson, Jónas Jónsson og Óskar H. Gunn- arsson. Notið rétta vinnuvettlinga í norsku búnaðarblaði rákumst við á ráðleggingu frá lesanda þess þar sem hann bendir á að betra en ekki sé að brúka duglega gúmmíhanska þegar menn handfjalli pappírs- sekki með áburði eða fóðurbæti. Með því fáist gott og stamt grip á poka og minna álag verði á hand- leggi og hendur. Freyr 493

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.