Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.02.1991, Qupperneq 8

Freyr - 01.02.1991, Qupperneq 8
88 FREYR 3.’91 p RITSTJÓRNARGREIN hluti nefndarinnar telur t.d. að 10% minni uppskera nytjajurta vegna minni notkunar áburðar og eiturefna myndi skila mjög miklum árangri við að bæta lífsskilyrði í ám og vötnum. Meirihlutinn telur að taka beri mið af þessu þegar mörkuð verði stefna um haldbæran landbúnað. Lagt er til að orkunotkun verði endur- skoðuð, orka spöruð og stefnt að orku- notkun sem hlífir umhverfinu og er frá uppsprettum sem endurnýjast, svo sem orka frá gróðri, eða sólar- og vindorka. Lagt er til að dregið verði úr notkun skaðlegra efna fyrir menn og vistkerfi, þ.m.t. plöntuvarnarefna. Nefndin telur raunhæft að notkun þeirra minnki um 50-70% á fáum árum. Landbúnaðurinn á að leggja sitt af mörkum á virkan hátt til að varðveita og bæta sköpunarverk náttúru og manns sem umhverfisverðmæti allra þjóðarinnar. Nefndin bendir á mál í þessu sambandi, svo sem að fólki líði vel, endurheimti kraftana, finni sig heima í umhverfi sínu og njóti menningararfs síns. Við notkun lands þarf að gæta verðmætis umhverfis og auka kost á frjálsri umferð um landið. Mikilvægasta byggðamarkmið landbún- aðarins er að halda uppi búsetu og atvinnu í sveitarfélögum þar sem landbúnaður skiptir sköpun um byggð, segir í nefndará- litinu. Jafnframt er viðurkennt að land- búnaður einn og sér hafi ekki bolmagn til að viðhalda þeirri byggð sem fyrir er. Nefndin leggur áherslu á að frumfram- leiðslugreinarnar muni hér eftir sem hing- að til vera burðarásinn í dreifðri byggð í landinu. Þær eru bundnar hinum dreifðu byggðum meira en aðrir atvinnuvegir vegna þess að þær byggjast á nýtingu nátt- úruauðlinda. Meirihluti nefndarinnar tel- ur að megindrættir í skiptingu framleiðslu. eftir héröðum og landshlutum skuli hald- ast óbreyttir. Aukin verðmætasköpun og- fjölþættari atvinnustarfsemi í dreifbýli er þegar til lengri tíma er litið það sem máli skiptir um að markmið byggðastefnunnar náist. Meiri úrvinnsla á hráefnum og aukin menntun og þekking heimafólks stuðlar í sameiningu að þessu. A hinn bóginn verður að gera skarpari greinarmun en hingað til á því sem hið opinbera leggur af mörkum til að auka atvinnu annars vegar og að viðhalda byggð hins vegar. Jafnframt þurfa opinberar að- gerðir til að viðhalda byggð að beinast markvissar að ákveðnum stöðum en hing- að til, segir í skýrslunni. Stefnumörkun um jafnrétti kynjanna er kjörin til þess að stuðla að því að konur og karlar eigi sama kost á að velja búskap sem starf, þ.e. verkfæri til að móta atvinnuveg- inn og taka þátt í honum á þeirra eigin forsendum. Skilyrði fyrir því að þetta tak- ist er að konur og karlar standi raunveru- lega jafnt að vígi pólítískt, félagslega og hvað varðar afkomu, segir í nefndarálit- inu. Til að koma á jafnrétti kynjanna bendir nefndin á eftirfarandi aðgerðir: - Fræða þurfi stúlkur og gera þær sér meðvitaðar um réttindi þeirra og skyldur samkvæmt lögum, einkum lög- um um óðalsrétt. - Sjónarmið umönnunar eru rík í lífi kvenna. Konum þarf í meira mæli en hingað til að gefast kostur á að starfa í greininni á þeim forsendum. - Tekjum af búrekstrinum á að skipta milli hjóna (sambýlisfólks) eftir raun- verulegu vinnuframlagi. - Færa þarf vinnureglur almannatrygg- ingakerfisins til nútímasjónarmiða. - Bæta þarf vinnuumhverfi á býlum sem fyrirbyggjandi aðgerðir til vinnuvernd- ar. - Öryggi barna við leik og störf á býlum þarf að bæta. Frli. á bls. 95.

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.