Freyr

Árgangur

Freyr - 01.02.1991, Blaðsíða 11

Freyr - 01.02.1991, Blaðsíða 11
3.’91 FREYR 91 Jón Bjarnason skólastjóri. „Við kennum auðvitað sauðfjár- rækt og nautgriparækt sem grunn- greinar. En annars er náminu skipt upp í tvær meginbrautir, það er búfræðibraut og fiskeldis- og fiski- ræktarbraut, og þar eru orðin tals- vert mikil skil á milli. Fiskeldis- og fiskræktarbrautin á Hólum hefur verið byggð upp á allra síðustu árum. Hún tekur mið að því að mennta starfsmenn, verkstjóra og framkvæmdastjóra í fiskeldisfyrir- tækjum og hún þjónar einnig þeirn bændum og bændaefnum sem vilja fara út í fiskeldi í smærri stíl eða vilja nýta og rækta ár og vötn. Þetta er nokkuð sjálfstæð braut". Aðsókn að henni sveiflast að vfsu nokkuð eftir velgengni í atvinnu- greininni en það má segja að þessi námsbraut sé orðin föst í sessi, og þar höfum við mjög náið samband bæði um kennslu, uppbyggingu, aðstöðu og starf í fiskeldis- og fiski- ræktarmálum. Hér er því komin nokkuð öflugur kjarni hérna í þeirri grein." „Þá höfum við eflt mjög kennslu í hrossarækt og reiðmennsku og það er líka komin mjög góð að- staða fyrir þá kennslu. Við rekum Hrossakynbótabú ríkisins og tengjum þá saman kennsluna og notkun hrossabúsins og þá sér- hæfðu starfsmenn sem að því vinna. Árið 1989 var tekið upp samstarf við hrossaræktarsam- bönd hér á Norðurlandi um úrval og tamningu á stóðhestum. Það má því segja að hér séu komnar mjög sterkar stoðir undir starfið í hrossarækt og kennslu á hrossa- rækt og reiðmennsku. Með tilkomu nýja reiðskálans eru verklegir tímar í hrossarækt og reiðmennsku settir inn á stunda- skrá alveg frá haustinu og fram á vor, því þetta er eins og hver önnur kennslustofa. Rauði þráðurinn í búfræðinám- inu er að verklegi þátturinn er Hefur f iskeldisbrautin veriðvelsótt? „Hún hefur verið mjög vinsæl. Mikil stund er lögð að kenna hrossarœkt og reiðmennsku á Bœndaskólanum á Hólum. Pessi mynd erfengin að láni úr námsvísi skólans 1989-1990.

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.