Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.02.1991, Qupperneq 24

Freyr - 01.02.1991, Qupperneq 24
104 FREYR 3.’91 Niðurstöður úr skýrslum nautgriparœktarfélaga árið 1990 Jón Viðar Jónmundsson Niðurstöður úr skýrsluhaldi nautgriparœktarfélaganna árið 1990 liggja nú fyrir. íþessari grein verður á hefðbundinn hátt gerð grein fyrir þessum niðurstöðum. Rétt er í upphafi að geragrein fyrirþví að árið 1990 varð meiri aukning afurða eftirhvern grip ínautgriparœkt- arfélögunum en nokkur dœ, Meðalafurðir eftir hverja reiknaða árskú á skýrslu reyndust 4141 kg og höfðu aukist um 136 kg frá árinu 1989. Tafla 1 sýnir að vanda nokkr- ar helstu fjölda- og meðaltalstölur í einstökum héruðum og fyrir landið í heild. Skýrslur voru gerðar upp á árinu frá 821 búi og er það nær óbreyttur fjöldi frá árinu 1989 þegar bú sem héldu skýrslur voru samtals 819. Þessar tölur sýna litlar breytingar í skýrsluhaldi á milli ára. Fjölgun á búum í skýrsluhaldi er nokkur á Vestfjörðum og er þátttaka í skýrsluhaldi að verða þar ein sú mesta á öllu landinu. Eins hafa Suður-Þingeyingar snúið vörn í sókn og aftur náð forystu á landinu í almennri þátttöku mjólkurfram- leiðenda í þessu starfi. Fækkun skýrsluhaldara er aftur á móti enn annað árið í röð á mestu mjólkur- framleiðslusvæðunum, Eyjafirði og Suðurlandi. Framhald slfkrar þróunar er með öllu óviðunandi. Á Austurlandi, þar sem ástandi þess- ara mála er samt sem fyrr bágast á öllu landinu, hillir ekki undir neina breytingu til batnaðar þar sem þar fækkar enn um einn skýrsluhald- ara á árinu 1990. Athygli er beint að þessari þró- un vegna þess að það er vissa höf- undar að ein allra virkasta aðgerð sem möguleg er til að bæta stöðu i eru um áður. Jón Viðar Jónmundsson. mjólkurframleiðenda í landinu er að auka þátttöku í þessu starfi. Til þess liggja ýmsar ástæður sem oft hafa verið raktar hér í blaðinu. Auknar kröfur til aukinnar hag- kvæmni í framleiðslu á landbúnað- arvörum munu einnig birtast m.a. í meiri samanburði á íslenskum landbúnaði og landbúnaði ná- grannalandanna. Ef það skortir á það lágmarks framleiðslueftirlit á búinu sem skýrsluhald er fyrir mjólkurframleiðendur veikir það stöðu greinarinnar. Þeir sem utan skýrsluhaldsins standa eru því í raun þátttakendur í að skapa óheppilega ímynd af starfsgrein sinni og þannig beint og óbeint að skaða eigin stöðu og stéttarbræðra sinna í bráð og lengd. Sama þróun kemur greinilega fram í kúaskýrslum og forðagæslu- skýrslur sýna, þ.e. að mjólkurkúm virðist fremur hafa farið fjölgandi árið 1990 frá árinu áður. Skýrslu- færðar voru samtals 23928 kýr og reiknaðar árskýr voru 18711,2 sem er hlutfallsleg fjölgun um 2,55 % frá árinu 1989. Þessar tölur sem raktar hafa ver- ið sýna að meðalbústærð hefur vaxið og er nú 22,8 árkýr eða 0,5 árskúm fleira en var á árinu 1989. Eins og áður eru bú stærst í Eyja- firði með 27,8 árskýr og í Árnes- sýslu með 27,4 árskýr. Eins og áður skera bú á Vestfjörðum sig mjög úr um stærð en þar eru að jafnaði árið 1989 12,2 árskýr á hverju búi. Meðalfjölgun kúa á hverju búi að jafnaði er áberandi mest á Suðurlandi. Afurðir eftir landssvœðum Áður eru nefndar tölur um þá miklu aukningu meðalafurða sem varð árið 1990. Hver árskýr mjólk- aði að jafnaði 4141 kg mjólkur. Veruleg aukning er í mjólkur- magni um allt land þó að aukningin sé hvað mest í Eyjafirði þar sem afurðir aukast um 194 kg eftir hverja kú og sama aukning í með- alafurðum í kg talið kemur fram á

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.