Freyr

Árgangur

Freyr - 01.02.1991, Síða 27

Freyr - 01.02.1991, Síða 27
3.’91 FREYR 107 Tafla 3. Kýr sem mjólkuðu yfir 8000 kg árið 1990 Nafn Faðir Mjólk kg fita kg Mjólkur- fita Prótein kg % Mjólkur- prótein Bær Ára 37 Álmur 76003 9149 5,99 548 3,26 298 Víðivöllum fremri. Fljótsdal Brynja 153 Bergur74003 8558 4,00 342 3,40 291 Bjarnargili, Fljótum Líf 17 Brúskur 72007 8547 3,70 316 3,22 275 Efri-Brunná, Saurbæ Kola 104 Lýtingur 77012 8533 3,52 300 3,24 277 Efri-Brunnavöllum, Skeiðum Einsemd 57 Ylur74010 8366 4,98 416 3,52 294 Búrfelli, Y.-Torfustaðahreppi Snúlla 61 Þorri 78001 8330 3,55 295 3,20 267 Efri-Brunná, Saurbæ Svinka 129 Dreki 81010 8247 4,16 343 3,28 271 Voðmúlastöðum. A.-Landeyjum Gvendólín 121 Dálkur 80014 8226 3,37 277 3,04 250 Fosshólum, Holtum Mósa 172 Víðir 76004 8219 4,31 354 3,17 260 Brakanda, Skriðuhreppi Mjöll 39 8198 3,94 323 3,64 290 L.-Tungu, Holtum Frekja 90 8159 3,79 309 3,27 267 Ketu, Rípurhreppi mjólkur. Pessu marki ná nú 119 af dætrum hans, en þetta svarar til að 36 % dætra hans sem lifandi voru í árslok hafi náð þessu marki og er það nefnt hér til að sýna hve vel þessar kýr standa sig með afurðir, því að aðeins eitt naut með nokkurn fjölda dætra á hærra hlut- fall þeirra í þessum hópi. Það er Skúti 73010, en rúm 40% dætra hans skila yfir 5000 kg af mjólk. Það virðist verða ljósara með hverju ári að Álmur 76003 er einn allra farsælasti gripur sem til þessa hefur komið fram í ræktun íslenska kúastofnsins og sá jákvæði dómur sem fæst um marga syni hans sem nú er verið að Ijúka afkvæmarann- sókn á styrkir enn þessa reynslu. Aðrir stórir dætrahópar meðal kúnna sem skila yfir 5000 kg af mjólk eru: Forkur 76010 á 94 dæt- ur, Víðir 76004 á 93 dætur, Drang- ur 78012 á 80 dætur, Lýtingur 77012 á 78 dætur, Bratti 75007 á 72 dætur, Skúti 73010 á 62 dætur, Þorri 78001 á 61 dóttur, Lambi 76005 á 54 dætur og Mjölnir 77028 á 52 dætur. Hér hafa þá verið taldir allir þeir systrahópar sem telja fleiri en 50 kýr. Þessi hópur nauta sem hér er talinn á það allur sammerkt að hafa verið fyrir nokkrum árum mikið notaður, þar sem nautin hafa öll á sínum tíma verið í notkun sem nautsfeður. Því miður er einn hópur kúa sem er alltof stór í skýrsluhaldinu en það eru kýr sem hafa þar óskráð faðerni. Á skrá á skýrslum félaganna eru í árslok lifandi nær 5000 kýr sem þannig er ástatt um ættfærslu hjá. Mestur hluti af þessum kúm eru dætur óskráðra heimanauta. Ástæða er til að vekja á því athygli að á sama tíma og flest hin reyndu naut eiga 15-40 % dætra sinna í hópi kúnna yfir 5000 kg þá er hlutfall þessar gripa á meðal ófeðruðu kúnna að- eins 11 %. Þetta er aðeins ein af þeim ábendingum sem alls staðar blasa við um að bændur geta veru- lega bætt val ásetningsgripa sinna. Afurðamestu kýrnar Eins og fram kemur í töflu 3 var afurðahæsta kýrin á landinu árið 1990 Ára 37 á Víðivöllum fremri í Fljótsdal. Hún mjólkaði árið 1990 9149 kg af mjólk með 5,99% fitu eða 548 kg mjólkurfitu og 3,26% prótein eða 298 kg af mjólkur- próteini. Vegna mjög óeðlilegrar fituprósentu mjólkur í þessu tilfelli þá er þörf á að nefna að aðeins ein efnamæling mjólkur er fyrir hendi í uppgjöri á þessu ári. Þetta gefur tilefni til að leggja áherslu á það við skýrsluhaldara að vanda vel til töku sýna til efnamælinga og fram- kvæma slfka sýnatöku reglulega. Niðurstöður úr efnamælingum úr einstökum kúm eru mjög mikils- verðar og hafa ekki síður verulegt gildi fyrir hinn einstaka mjólkur- framleiðanda vegna mælinga á frumutölu úr einstökum kúm, sem þeim eru ákaflega mikilsverðar til að fylgjast með júgurhreysti kúnna. Vegna þess hvernig það magn mjólkurfitu sem hér er birt fyrir þessa ágætu kú er til orðið, en þetta er langmesta magn sem dæmi eru um nokkru sinni hér á landi, verður að líta á þetta sem „óeðli- lega“ niðurstöðu. Ára er ein af hinum fjölmörgu miklu afurða- gripum undan Álmi 76003. Hún hlaut nautsmæðradóm á kúasýn- ingum á Austurlandi árið 1989 og vakti þar athygli eins og fram kem- ur í síðasta árgangi Nautgriparækt- arinnar. Þessi kýr bar í árslok 1989 en bar ekki á árinu 1990 og hafði að því leyti mjög góð ytri skilyrði til að skila miklum afurðum. Næst henni á þessum lista stend- ur Brynja 153 á Bjarnargili í Fljótum. Hún mjólkar 8558 kg af mjólk. Á Bjarnagili er skýrsluhald nýlega hafið að nýju og ekki eru fyrir hendi efnamælingar úr mjólk hjá þessari kú. Brynja er dóttir Bergs 74003 og hún eins og Ára bar í árslok 1989 en síðan ekki á árinu 1990. í þriðja sæti er síðan gamal- þekkt afrekskýr á þessari skrá, Líf 17 á Efri-Brunná í Saurbæ, en hana hefur oft áður verið að finna á skrá um kýr sem mjólka yfir 8000 kg. Hún mjólkaði árið 1990 8547 kg af mjólk. Hún bar í aprílmánuði og átti þá nautkálf sem er undan Rauð

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.