Freyr

Årgang

Freyr - 01.02.1991, Side 31

Freyr - 01.02.1991, Side 31
3.’91 FREYR 111 júgurbyggingu og fá mjög góða umsögn eignenda sinna um mjalt- ir. Auk Þistils veljast sem nauts- feður Sopi 84004 og Belgur 84036. Sopi er frá Lækjartúni í Asahreppi úr hinu þekkta búi Guðmundu Tyrfingsdóttur og er sonur Álms 76003. Meðal dætra Sopa er þegar að finna allmargar frábærlega getumiklar kýr til afurða. Ástæða er til að benda á að Sopi virðist gefa dætur sem hafa góða prótein- prósentu í mjólk. Þær dætur hans sem ég hefi séð eru margar ákaf- lega álitlegar mjólkurkýr og í raun það eina lijá þeim sem hægt er að benda á sem veikan þátt er að í sumum tilfellum væri æskilegt að júgurgerð væri sterklegri. Rétt er samt að benda á að hér er um að ræða þátt sem erfitt er að dæma hjá ungum kúm, en sumar dætur hans minna að þessu leyti á móðursystur Sopa, þ.e. dætur Más 72003. Mjaltir hjá dætrum Sopa virðast mjög góðar. Belgur 84036 er aftur á móti sonur Víðis 76004. Hann er frá Tóftum í Stokkseyrarhreppi og var móðir hans, eins og móðir Sopa, dóttir Más 72003. Dætur Belgs eru margar fádæma getu- miklar kýr til afurða. Þetta eru margt mjög bolmiklar og glæsileg- ar kýr. í heild var áberandi í þess- um árgangi nauta að synir Víðis gefa kýr sem teljast ekki eins jafn- góðar í mjöltun og dætur Álmsson- anna og er það í raun í fullu sam- ræmi við það sem löngu er vel þekkt um feður þeirra. Öll þessi þrjú naut sem valin hafa verið til notkunar sem nautsfeður eru sér- lega efnilegir gripir til kynbóta. Rétt er að vísu að geta þess að bæði Þistill og Sopi munu gefa allmikið af hyrndum afkvæmum sem raunar kemur ekki á óvart með tilliti til ætternis þeirra. Þó að hér hafi verið gerð grein fyrir þrem mjög álitlegum nautum úr þessum hópi þá er þar að finna fleiri naut sem ástæða er til að vekja athygli á. Til áframhaldandi notkunar eru teknir tveir Álmssyn- ir til viðbótar Sopa, þeir Suðri 84023 og Flórgoði 84031. Suðri á stærri hóp dætra en nokkurt annað naut í árgangnum. Hann er frá Hjálmholti, sonur þeirrar lands- frægu kýr Sneglu 231. Dætur Suðra eru nokkuð misjafnar að ytra útliti, en þar er samt að finna allmargar ákaflega glæsilegar kýr, þó að þær sýni full litla kynfestu. Þess má samt vænta að þetta naut geti haft verulega jákvæð áhrif. Flórgoði er frá Heiði í Ásahreppi, dóttursonur Glampa 63020. Hann er vafalítið eitt sérstæðasta naut sem komið hefur úr afkvæmaprófun á síðari árum. Dætur hans eru margar ein- staklega getumiklar mjólkurkýr. Margar þeirra eru aftur á móti ákaflega illa vaxnar kýr, metið eft- ir því mati sem hér á landi er lagt á þá þætti, þó að einstaka mjög glæsilega kú sé að finna meðal dætra hans. Dætur beggja þessara Álmssona fá mjög góðan dóm um mjöltum. Eitt naut enn úr árgangn- um verður tekið til frekari notkun- ar að fengnum dómi og er það Merkúr 84029, sem er Víðissonur frá Tóftum í Stokkseyrarhreppi, eins og Belgur 84036, og þessi naut í raun náskyld því að auk þess að vera samfeðra þá voru mæður þeirra hálfsystur í móðurætt. Dæt- ur Merkúrs eru kröftugar kýr, sem hafa allgóða getu til afurða en gefa full magra mjólk. Mjaltir hjá þess- um kúm eru aðeins breytilegar. Þá eru tvö naut til viðbótar úr hópnum sem fá dóm sem kýrfeður og eru það Olli 84003 og Steggur 84014 en sæði úr þeim verður því aðeins afgreitt frá Nautastöðinni að þess sé sérstaklega óskað. Þeir sem kynnu að vilja nota þessi naut verða því að gera ráðstafanir þar um tímanlega. Þess skal að síðustu getið að á nautsmæðraskrá eru nú 769 kýr. Eins og áður hvet ég eigendur þessara kúa til að gæta þess að þær séu sæddar með sæði úr þeim naut- um sem valin hafa verið sem nauts- feður. Fæðist nautkálfur undan slíkri kú og einhverju þeirra nauta sem voru í notkun sem nautsfeður á síðasta ári, en það voru Kaupi 83016, Bjartur 83024 og Hrókur 83033, þá vinsamlega látið vita um slíkt til héraðsráðanautar og verð- ur þá kannað hvort kálfinn beri að taka á Uppeldisstöðina. Framboð kálfa hefur aldrei verið jafn mikið og gott og á árinu 1990 og er von- andi að sú þróun mála haldi áfram. Með þessu góða framboði vona ég einnig að þeir sem verða fyrir því að nautkálfi sem boðinn er sé hafn- að hafi á slíku góðan skilning því Frh. á bls. 114. Orðsending til bœnda á fjárskiptasvœðum Þeir bœndur sem œtla að kaupa líflömb haustið 1991 eftir samningsbundið fjárleysi, þurfa að leggja inn skrif- lega pöntun á líflömbum fyrir 15. mars nk. Sauðfjársjúkdómanefnd ákveður hvaðan líflömb séu tekin. Aðeins þeir bœndur koma til greina sem lokið hafa fullnaðar sótthreinsun á fjárhúsum og umhverfi þeirra. Sauðfjárveikivarnir Rauðarárstíg 25 150 Reykjavík

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.