Freyr - 01.02.1991, Side 35
3.’91
FREYR 115
Veiðin í Rangánum 1990
Guðni Guðbergsson og Magnús Jóhannsson.
INNGANGUR
Það vakti mikla athygli á síðasta sumri að Rangárnar urðu hœstar hvað varðar fjölda
veiddra laxa (Guðni Guðbergsson 1991, í undirbúningi). Þetta er einkum athyglisvert
þegar haft er í huga að laxveiði í Rangánum var að meðaltali 49 laxar á árunum 1972 -
1989.
Guðni Guðbergsson.
Rangárnar höfðu fyrst og fremst
verið sjóbirtingsveiðiár, með að
meðaltali 209 veidda urriða og sjó-
birtinga. Ástæða mikillar laxveiði-
aukningar virðist fyrst og fremst
vera vegna velheppnaðra göngu-
seiðasleppinga í árnar vorið 1989.
Þá var um 48.000 gönguseiðum
sleppt úr sleppitjörnum á fjórum
stöðum á vatnakerfi Rangánna.
Nánar er greint frá aðferðum við
sleppingar og endurheimtum í sér-
stakri samantekt (Magnús Jó-
hannsson og Guðni Guðbergsson
1991).
I þessari grein verður veiðin tek-
in fyrir, sérstaklega samsetning
hennar og dreifing yfir veiðitíma-
bilið. Til grundvallar eru lagðar
veiðiskýrslur en skráning veiðinn-
ar var með miklum ágætum.
Aðferðir.
Veiði sumarsins var skráð í veiði-
Magnús Jóhannsson
bækur. í þær er færður veiðidagur,
veiðistaður, tegund, kyn, þyngd
(þyngd er skráð í pundum þar sem
eitt pund = 500 gr), lengd og teg-
und agns sem fiskur var veiddur á.
Gögn úr veiðibókum voru tölvu-
skráð og reiknaður fjöldi laxa, ur-
riða (sjóbirtings) og bleikju, kynja-
skipting tegundanna og fjöldi
veiddra fiska eftir agni. Þyngdar-
dreifingar hverrar tegundar var
tekin saman.
Hreistur var tekið af hluta veið-
innar og það notað til að ákvarða
aldur og uppruna fiskanna. Ald-
ursgreining hreistursins leiddi í ljós
að hængar 76 sm og stærri og
hrygnur 68 sm og stærri höfðu
dvalið tvö ár í sjó. Fiskar minni en
þessi mörk höfðu dvalið eitt ár í
sjó. Okyngreindum fiskum var
skipt í sömu hlutföllum og kyn-
greindum. Holdastuðull var reikn-
aður samkvæmt jöfnunni:
Tafla 1. Skipting laxveiðinnar í Rangánum 1990, effir kynjum
og agni.
Agn Hængar Hrygnur Ókyngr. Alls
maðkur...................... 142 258 42 442
fluga....................... 159 244 60 463
annað....................... 276 308 133 717
alls........................ 577 810 235 1622
Tafla 2. Skipting silungsveiðinnar (urriði og bleikja) í Rangán-
um 1990, eftir tegundum og agni.
Agn Bleikja Urriði Óvíst
maðkur............................... 34 106 0
fluga................................. 5 22 0
annað................................ 36 51 0
alls................................. 75 179 0