Freyr

Árgangur

Freyr - 01.01.1992, Síða 16

Freyr - 01.01.1992, Síða 16
8 FREYR 1.’92 RITSTJÓRNARGREIN ar breytingar á grunneðli samkomulagsins að rætt hefur verið um að setja á fót sérstaka stofnun sem sæi um framkvæmd þess en hingað til hefur framkvæmdin að mestu verið í höndum aðildarríkjanna. Sérfræðingum hefur reiknast til að verði þetta nýja samkomulag að veruleika geti það aukið heimsviðskiptin um milljarða bandaríkjadala. Gallinn er bara sá að þrot- lausar viðræður síðustu ára hafa ekki leitt til neins. Meginástæða þess er að Banda- ríkin og Evrópubandalagið, voldugustu aðildarríkin, hafa ekki getað komið sér saman um hvernig skipta eigi kökunni. Bandaríkin og EB hafa háð heiftarlegt viðskiptastríð sín á milli megnið af níunda áratugnum; stríð sem fréttamiðlar hafa lítið sinnt. Þetta stríð hefur sett svip sinn á GATT-viðræðurnar, þó einkum á þann þátt þeirra sem snýr að landbúnaðinum, en viðræðurnar spanna flest svið alþjóð- viðskipta eða allt frá bananasölu til banka- viðskipta. Bandaríkin eru stærsti útflytj- andi landbúnaðarafurða í heimi og helsti frumkvöðull þess að landbúnaðarafurðir yrðu felldar undir endurskoðun GATT- samkomulagsins. Aðrar helstu útflutn- ingsþjóðir landbúnaðarafurða, t.d. Ástralía, Nýja Sjáland og Argentína, hafa lýst yfir stuðningi við Bandaríkin í baráttu þeirra við innflutningshöft EB og hóta að stöðva framgang viðræðnanna á öðrum samningasviðum uns ásættanlegum niður- stöðum yrði náð í deilunni um landbúnað- armálin. Samningar tókust hins vegar ekki fyrir tilskilinn tíma, hvorki á árinu 1990, né að loknum framlengdum fresti hinn 18. desember sl. Arthúr Dunkel, fram- kvæmdastjóri viðræðnanna, greip þá til þess ráðs að leggja fram í eigin nafni samningsdrög í þeirri von að höggva á hnútinn. Landbúnaðarkafli samningsdraganna kom verulega á óvart þar sem Dunkel gekk mun lengra en flestir höfðu átt von á. Segja má að á einni nóttu hafi framtíðar- horfur íslensks landbúnaðar að engu orð- ið. Það er því fráleitt að halda því fram að tillögur Dunkels séu landbúnaðinum hag- stæðari en tilboð fyrrverandi ríkisstjórnar árið 1990. Drögin gera t.d. ekki ráð fyrir neinum verðtryggingarákvæðum, svo að lítið dæmi sé nefnt. Það eitt gerir þau að haldlitlu plaggi í löndum þar sem efna- hagsástand hefur verið óstöðugt á undan- förnum árum, eins og hér á landi. Þá er gert ráð fyrir að útflutningsbætur verði lækkaðar um einungis 36% sem þýðir að íslenskur landbúnaður yrði að keppa við mikið niðurgreiddar vörur, og svona mætti lengi telja. Sannleikurinn er sá að það eitt vakti fyrir Dunkel að bera klæði á vopn Bandaríkjanna og EB. Samningsdrögin taka því ekkert tillit til smástærða á borð við íslenskan landbúnað. Þarna var því verið að fórna minni hagsmunum fyrir meiri. Það má því vera ljóst að taugatitringur bændasamtakanna var ekkert frumhlaup og gagnrýni af því tagi byggir því miður á vanþekkingu eða misskilningi, nema hvort tveggja sé. Samningsdrögin bárust mönn- um í hendur skömmu fyrir jól. Islensku bændasamtökin hlutu við fyrsta tækifæri að krefja stjórnvöld svara við stefnu þeirra í þessu máli, sem er það stærsta sem íslenskur landbúnaður hefur staðið frammi fyrir til þessa. Og skilaboðin sem fylgdu drögunum voru þau að skila þyrfti inn athugsemdum í síðasta lagi 13. janúar sl. Það er mesti misskilningur að bænda- samtökin hafi málað skrattann á vegginn eða krafist þess að við höfnuðum aðild nýju GATT-samkomulagi. Bændasamtök víðs vegar um heiminn hafa þvert á móti lýst yfir stuðningi við að samkomulag Frh. á bls. 28.

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.