Freyr - 01.01.1992, Blaðsíða 18
10 FREYR
1.’92
sóknum sem þá voru gerðar voru
mjög slæmar. Við fundum að vísu
vatn með breytilegu hitastigi og
breytilegri seltu í sandlögum
nálægt ströndinni en þetta vatn var
allt mengað járni og óhæft til fisk-
eldis.
Árið 1986 gekk okkur betur.
Með því að komast niður úr sand-
lögunum og niður í bergið þá kom-
umst við niður á meira vatn og
betra.
Var þetta heitt vatn?
Það var misjafnlega heitt. Þarna
árið 1986 kom fyrsti jarðborinn á
svæðið en áður höfðum við dælt
niður rörum alveg niður á 50 m
dýpi, og þótti fáheyrt. Orkustofn-
un blandaði sér í málið þegar svo
var komið og það endaði með því
að við fengum fjárveitingu árið
1986 gegn mótframlagi að heiman.
Þá kom hingað lítill jarðbor sem
boraði alveg út í flæðarmálinu og
var að leita að því hvernig sjótaka
gæti farið fram, en þá kom upp 9
stiga heitt ferskt vatn undir þrýst-
ingi, alveg í flæðarmálinu, en
þrýstingurinn náði fjórum metrum
upp fyrir sjávarmál.
Þetta þótti mjög merkilegt og
það var svo niðurstaðan árið 1987
Björrt Benediktsson. (Freysmyndir)
að ná þessu 9 gráðu heita vatni hér
ofan við Brunná, sem er til mikilla
þæginda varðandi það að nýta
vatnið.
Þegar svo var farið að bora hér
árið 1987 eftir þessu 9 gráðu heita
vatni þá kom upp 37 gráðu heitt
vatn og þótti mörgum ótrúlegt. í
framhaldi af því var borað víðar og
þá komu menn niður á mikið magn
af köldu ferskvatni.
Eftir að þessi staða var upp kom-
in þótti ljóst að þarna væru fyrir
hendi aðstæður til fiskeldis og
haustið 1988 er byrjað að byggja
upp stöðina hér. Þá er stofnað
hlutafélagið Silfurstjarnan hf. Af
hlutafénu komu 35% frá Seljalaxi,
10% komu frá eigendum landsins
með því að leggja það til ásamt
annarri aðstöðu, 20% komu frá
Byggðastofnun og 35% frá öðrum
aðilum.
Hvaða jörð á hér land?
Stöðin er byggð í landi Núps. Að-
stöðuhúsið hér er svo gert fokhelt
haustið 1988 og jafnframt var
byggð klakstöð að Sigtúnum hér í
sveit, sem er jörð sem Silfurstjarn-
an á einnig. Þar er völ á vatni með
tvenns konar hita, köldu og heit-
ara, án dælingar. Árið eftir, 1989,
voru svo aðalframkvæmdirnar hér.
Þá voru kerin byggð og keyptur
fiskur jafnharðan, því að okkur var
alveg ljóst að ef við yrðum ekki
komnir með framleiðslu á árinu
1990 þá myndum við ekki hafa
þetta af fjárhagslega.
Það kom svo í ljós að við þær
aðstæður sem hér eru, þ.e. að geta
haft fulla stjórn á hita og seltu í
kerjunum. þá næst mikill vaxtar-
hraði á fiskinum.
Hvaða fisktegund byrjuðu
þið með?
Það var byrjað á laxi og strax
ákveðið að hafa hér jöfnum hönd-
um sjóbleikju og lax, en sjóbleikja
var ekki strax fyrir hendi og því
einungis byrjað á laxinum. Jafn-
framt var gengið í það að útvega
hrogn og svil af sjóbleikju og setja í
gang fyrstu kynslóðina af sjó-
bleikju í klakstöðinni í Sigtúnum.
Þessi lax sem var keyptur árið
1989 var kominn í söluhæfa stærð
árið 1990 og það ár seljum við rúm
60 tonn af fiski, mest til Bandaríkj-
anna. Á þessu ári erum við að
koma framleiðslunni í það horf
sem við ætluðum henni. Við getum
nú afhent sama magn af þessum
fisktegundum í öllum mánuðum
ársins. Það er auðveldara en ég
reiknaði með, en það er grundvall-
/ þessu keri voru laxar sem aldir voru upp í sérpöntun frá Caviar Petrossian i
Frakklandi. Peir voru slœgðir 8 kg að þyngd að meðaltali og voru sendir út
nokkru fyrir jól. Fiskurinn fór í reykingu.