Freyr - 01.01.1992, Blaðsíða 28
1. tbl. 92 HYRNA fréttahom 1 U K.
Verðfelling á mjólk metin
EFTIR FLEIRI ÞÁTTUM EN ÁÐUR
-Frumutala, hitaþolnir og
kuldakœrir gerlar lagðir
tilgrundvallar, auk heildar-
gerlafjölda.
Skömmu fyrir síðustu jól
tók gildi breyting á reglugerð um
mjólk og mjólkurvörur. Þar er að
finna nokkur nýmæli sem skipta
framleiðendur miklu máli í
framU'ðinni.
Mjólk sem lögð er
inn í samlag skal nú flokkuð
og verðfelld eftir heildar-
gerlafjölda, fjölda hita-
þolinna og kuldakærra gerla
og frumutölu. Áður var
einungis skylt að verðfella
mjólkina eftir heildargerla-
fjölda en flokkun eftir
frmutölu var skylda þó svo
að ekki væri heimilt að verð-
fella vegna hárrar frumutölu.
Þá var heimiltaðflokkaeftir
fjölda hitaþolinna og
kuldakærra gerla en einungis
samlög nýttu sér það.
Flokkun skal framkvæmd
vikulega, þ.e. fjórum sinnum í
mánuði. Heildargerlar skulu taldir
a.m.k. þrisvar og hitaþolnir og
kuldakærir a.m.k. einu sinni.
Mjólkurstöðvum er þó heimilt að
flokka oftar og skal þá jafnan miða
verðfellingu við lökustu niðurstöðu.
Mörk fyrir heildargerla-
fjölda eru óbreytt. í l.fl. fer mjólk
sem inniheldur undir 100.000 gerla/
ml og í 3.fl. mjólk með yfir 500.000
gerla/ml. Viðmiðunarmörk fyrir
hitaþolna og kuldakæra gerla eru
einnig þau sömu og áður en nú er
munurinn sá að skylt er að verðfella
mjólkina ef hún fellur í 2. eða 3.
flokk eftir þessari talningu. Sama
gildir um frumutölu, falli mjók í 2.
eða3. flokkvegnaofhárrarfrumutölu
er skylt að verðfella mjólkina. Hins
vegar hafa mörkin varðandi frumu-
MÖRK EINSTAKRA FLOKKA í ÞÚSUNDUM l..fl 2.fl 3.fl
Heildargerlafj. gerlar/ml 0-100 100-500 500 og yfir
Hitaþolnir gerlar 0-10 10-50 50 og yfir
Kuldakærir gerlar gerlar/ml 0-50 50-200 200 og yfir
Frumutala frumur/ml 0-750 750-1000 1000 og yfir
(Frá 1. sept. 1994 0-600 600-800 800 og yfir)
fá
tölu verið þrengd. Nú fer mjólk í 1. fl.
ef frumtala er undir 750.000 í ml og
í 3. fl. ef fjöldinn fer yfir 1.000.000
frumur í ml. Þessi mörk verða enn
þrengd 1. sept. 1994 en þá fer mjólk
í l.fl. ef frumtalan er undir 600.000
í ml og í 3.fl. fari fjöldinn yfir 800.000
frumur í ml.
Frumutalning skal fara fram
minnst tvisvar í mánuði. Meðaltal
mælingatveggjamánaða, uppgjörs-
mánaðarognæstaáundan, skal lagt
til grundvallar við ákvörðun
verðskerðingar. Þannig liggja a.m.k.
4 mælingar að baki meðaltalinu en
víðast fer talning nú fram fjórum
sinnum í mánuði þannig að oftast
verður meðaltal 8 mælinga lagt til
grundvallar.
Fari meðaltal frumutölu tveggja
mánuða upp fyrir mörk 1 .flokks fjóra
mánuði í röð er mjólkursamlagi
óheimilt að kaupa mjólkina. Vottorð
héraðsdýralæknis um að hafnar séu
aðgerðir sem tryggi lækkun
frumutölunnar er skilyrði
þess að aftur fái
innleggsheimild.
Vakin skal sérstök
athygli á heimild mjólkubúa
til að veita undanþágu frá
verðskerðingar- og sölu-
bannsákvæðum varðandi
frumutölu. Ef framleiðandi
gerir skriflegt samkomulag
við héraðsdýralækni og
viðkomandi mjólkurbú um
aðgerðir til lækkunar frumu-
tölu og getur undanþágan
lengst staðið í 12 mánuði.
Þar sem hér er um veigamiklar
breytingar að ræða er bændum og
mjólkurstöðvum gefinn nokkur
aðlögunartími og koma þær
breytingar sem að framan eru nefndar
ekki til framkvæmda fyrr en 1.
september í haust. Fram að þeim
tíma er mjólkurbúunum skylt að
senda framleiðendum mánaðarlega
niðurstöður frumutalningar og fjölda
hitaþolinna og kuldakærra gerla og
jafnframt greina frá hver verðfelling
hefði orðið ef verðfella þyrfti
mjólkinaeftirþeim reglum sem taka
gildi 1. september 1992.
LK • LANDSAMBAND KÚABÆNDA • UÞL • UPPLÝSINGAÞJÓNUSTA LANDBÚNAÐARINS