Freyr - 01.01.1992, Blaðsíða 32
24 FREYR
1.’92
Ár 1991 Nr. 616
GALLIGNANI - rúllubindivél
Gerð: Gallignani 9550. Framleiðandi: Gallignani A.
S.p.a., Russe, Ítalíu. Innflytjandi: Orkutækni hf.
Reykjavík.
YFIRLIT
Rúllubindivélin Gallignani 9550 var reynd af Bú-
tæknideild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins
sumarið 1991. Vélin var aðeins reynd á fyrri sláttar
uppskeru og bunnir um 200 baggar.
Rúllubindivélin er dragtengd og knúin frá aflúttaki
og með vökvaþrýstingi dráttarvélar, og vegur um 2660
kg. Hún tekur hey á öllum þurrkstigum upp úr
sláttuskárum eða múgum og vefur saman í þétta
sívalningslaga rúllubagga. Baggarnir eru 1,2 m breiðir
og þvermál 1,6-1,7 m eftir þéttleika á garnbindingu.
Rúmmál þeirra er því 2,4—2,7 m3. Þyngd þeirra við
30% þurrefnisinnihald er um 950 kg, 50% þurrefnis-
innihald um 750 kg, og við 80% um 470 kg. Nettó
afköst við bindingu forþurrkaðs heys voru um 20
baggar á klst eða um 7,5 tonn af þurrefni á klst. Hægt
er að stilla vélina á mismunandi þjöppunarstig en
fyrrgreindar tölur miðast við mestu þjöppun. Aflþörf
vélarinnar á tengidrifi er oft um 43 kW (58 hö) en
mældist mest um 52 kW (71 hö). Vélin var ekki mæld í
grænfóðri. Eigin þyngd vélarinnar er fremur mikil
þannig að eigi að fullnýta afkastagetu hennar má ætla
að þurfi minnst um 50 kW (81 hö) dráttarvél. Bindi-
vélin er tiltölulega lipur í notkun og daglegt viðhald
fremur einfalt. Baggar eru að jafnaði vel lagaðir en
nokkuð háð ökulagi. Sópvinda vélarinnar er fremur
há sem getur verið til baga í smágerðu heyi1*. í upphafi
reynslutímans vann garnahnýtibúnaður vélarinnar
Frh. á bls. 26.
Ár 1991 Nr. 617
GALLIGNANI - rúllupökkunarvél
Gerð: Gallignani G90 S. Framleiðandi: Gallignani
A., S.p.a., Russe, Ítalíu. Innflytjandi: Orkutækni hf.
Reykjavík.
YFIRLIT
Gallignani G90 S rúllupökkunarvélin var prófuð af
Bútæknideild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins
sumarið 1991. Var hún notuð alls um 44 klst við
pökkun á 511 böggum. Prófunartíminn var venju
fremur skammur, vélin aðeins reynd á fyrri sláttar
böggum.
Pökkunarvélin er ætluð til að pakka rúlluböggum af
öllum algengum stærðum inn í plastfilmu. Hún er
dragtengd og knúin af vökvakerfi dráttarvélar og
vegur um 1570 kg. Vélin er með lyftubúnaði sem tekur
baggana upp af jafnsléttu upp á pökkunarborð. Á
borðinu er bagganum snúið og velt um leið og þannig
má stjórna þéttleika vafninga, en jafnframt er búnað-
ur til að stjórna mismunandi strekkingu á filmunni.
Pegar bagginn er fullpakkaður er pallinum snúið í
sturtustöðu ogbagganum velt aftur af vélinni. Vélin er
með sjálfvirkan skurðbúnað fyrir plastfilmuna. Nettó
afköst vélarinnar eru oft á biíinu 20-35 baggar á klst
allt eftir aðstæðum og vafningafjölda. Ætla má að 30
kW (41 hö) sé lágmarksstærð dráttarvélar fyrir pökk-
unarvélina. Við fjórfalda pökkun er filmunotkun um
0,9-1,0 kg á bagga (þvermál 1,2 m) eða sem svarar
70-80 m af filmu á hvern bagga, en er eðlilega háð
þurrkstigi og baggastærð. Vélin er á belgmiklum
hjólbörðum sem bera hana vel við erfiðar aðstæður.
Ef hey slæðist úr böggunum við pökkun vill það
safnast fyrir á pökkunarborði og jafnvel setjast undir
burðarbeltin ef það er ekki hreinsað jafnóðum. í lok
reynslutímans var ekki unnt að sjá óeðlilegt slit á
vélinni og engar meiri háttar bilanir komu fram. Vélin
er traustlega smíðuð og dagleg hirðing einföld.