Freyr - 01.01.1992, Síða 34
26 FREYR
1.’92
Ár 1991 Nr. 620
Gerð: Krone KW 440-4. Framleiðandi: Krone
GmbH, Þýskalandi. Innflytjandi: Vélar og þjónusta
hf., Reykjavík.
YFIRLIT
Heyþyrlan Krone KW 440-4 var reynd af Rannsókna-
stofnun landbúnaðarins, Bútæknideild, sumariðl991
og notuð alls um 63 klst.
Heyþyrlan er tengd á þrítengi dráttarvélar og drifin
frá aflúttaki hennar. Hún vegur 604 kg. í flutnings-
stöðu er ytri stjörnunum lyft upp í lóðrétta stöðu með
vökvatjökkum. Hæfni heyþyrlunnar til heysnúnings
reyndist góð og ójöfnum lands fylgir hún vel.
Heymúgum dreifir vélin í 5,4-6,4 m breiðan flekk.
Vinnslubreidd vélarinnar er allt að 4,15 m og afköst
við heysnúning reyndust að jafnaði 3,5 ha/klst, en
mest 5,0 ha/klst. Á mjög fljótvirkan hátt má stilla
heyþyrluna þannig að hún kasti heyinu nokkuð til
hliðar, t.d. frá skurðbökkum og girðingum. Liður í
beislisbúnaði vélarinnar auðveldar vinnu með henni í
beygjum. Heyþyrlan er traustbyggð. Á reynslutíman-
um varð engra bilana vart.
KVERNELAND-rúllubaggatœtari.
Frh. afbls. 23.
ins þar sem fremur gróft hey saxast þannig að um 60%
er með minni strálengd en 8 cm. Könnun á dreifigæð-
um sýndi að þau eru að jafnaði viðunandi en verða
ójöfn þegar heyið veltur óreglulega í baggahólfinu.
Notkun tætarans er heldur óþjál inni á fóðurgangi
nema rými sé mikið, og gólf þurfa að hafa mikið
burðarþol. Tækið er traustlega smíðað og engar meiri
háttar bilanir komu fram á reynslutímanum.
ELHO-áburðardreifari.
Frh. afbls. 23.
isopi reyndust fjarri því að gilda fyrir grófkorna
íslenskan áburð. Nokkurt gagn má hafa af mælistauk
sem fylgir dreifaranum við stillingar á dreifimagni.
Engar bilanir komu fram á reynslutímanum.
Ár 1991 Nr. 621
KRONE - stjörnumúgavél
Gerð: Krone KS 380-420/12. Framleiðandi:
Maschinefabriken Bernard Krone GmbH, Þýska-
landi. Innflytjandi: Vélar og þjónusta hf., Reykjavík.
YFIRLIT
Krone KS 380—420/12 stjörnumúgavélin var reynd af
Bútæknideild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins
sumarið 1991 og notuð alls um 58 klst.
Stjörnumúgavélin er tengd á þrítengi dráttarvélar
og knúin frá aflúttaki. Hún vegur 678 kg. Múgavélin
reyndist raka vel og skilja eftir litla dreif við algengar
aðstæður. Magn dreifar í rakstrarfari mældist að
jafnaði á um 1,2 hkg þe./ha, eða sem svarar 1,4 hb/ha
við ökuhraða 5-10 km/klst. Við bestu aðstæður er
dreifarmagnið um 0,6 hkg þe./ha. Þrátt fyrir mikla
vinnslubreidd reyndist vélin fylgja vel ójöfnum á
yfirborði landsins. Hún getur rakað frá girðingum og
skurðbökkum. Liður í beislisbúnaði vélarinnar auð-
veldar vinnu með henni í beygjum. Vinnslubreidd
vélarinnar er stillanleg en rakstrarfar getur orðið allt
að 3,1 m að breidd. Hæfilegur ökuhraði var oft um
8-12 km/klst. og afköst að jafnaði um 2,5 ha/klst.
Vélin rýrir framþunga dráttarvéla verulega og getur
þurft að þyngja þær til að uppfylla ákvæði um þunga-
hlutföll. Múgavélin er traustbyggð og engra bilana
varð vart á reynslutímabilinu.
ALLIGNANI-rúllubindivél.
Frh. afbls. 24.
ekki eðlilega vegna vanstillingar. Vélin virðist traust-
byggð og ekki kom fram óeðlilegt slit eða bilanir á
reynslutímanum.
Umboösaöili upplýsir að á vélunum verði framvegis slæöigrindur á
sópvindu og aö á vélinni megi hafa netbindingu jafnhliöa garnbind-
ingu.