Freyr

Árgangur

Freyr - 01.03.1994, Blaðsíða 10

Freyr - 01.03.1994, Blaðsíða 10
Pað var hœgt að ganga á sokkunum um tandurhreinan garðann ogfjárhúsgólfið. Heimtur voru góðar af fjalli á var góð, aðeins fjögur föll fóru í 2. Stóru-Hámundarstaðafé í haust, flokk. J.J.D. meðalfallþungi var 15 kg og flokkun MOLRR Brennisteinsvetni úr eldstöðvum vinna fyrir skólagöngu, en hjálpa foreldrum sínum við búið þegar þeir hafa stundir aflögu. Baldvin er með tvo rafknúna hey- skera í hlöðunni, annar er stór og þungur en hinn er léttur og lipur. Miklar heyfyrningar voru í hlöðunni þegar blaðamaður Freys leit þar inn og sagðist Baldvin yfirleitt eiga fyrn- ingar til eins árs. Hann fóðrar eins og fyrr sagði eingöngu á votheyinu og gefur ofurlítið af beinamjöli með allan veturinn, nálægt 40 g á dag, á kind. Hann beitir fénu ekkert. Það hefur komið fyrir að kind hafi fengið doða en mjög er sjaldgæft að Bald- vin missi kind úr honum. Fjárhúsin eru hvítmáluð að innan og rimlagólfin þvegin og hreinsuð. Á hverju vori þvo Baldvin og Elín öll fjárhúsin með vatni og háþrýsti- dælu, þannig að húsin eru alltaf hrein og fín þegar farið er að nota þau á haustin. Ofan á garðabönd eru fest fjögurra tommu borð sem þægi- legt er að sitja á við sauðburðinn. Spilgrindur hafa þau tilbúnar sem passa í krærnar þegar þarf að spila þær af um sauðburðinn. Sími er í fjárhúsinu sem tengdur er bæði heim í bæ og við almennan síma. Einnig er þar útvarp. Loftræsting er með viftu sem kveikir á sér sjálf þegar hitnar í húsinu. Uppi á þili er hátíðnitæki, s.n. músahögni eða hátíðnihögni sem fælir burtu mýs. Baldvin rúllar yfirleitt það vothey sem hann kemur ekki í hlöðuna og geymir rúllurnar á fjárhúsganginum. Áður sóttu mýs í rúllurnar en eftir að hátíðnihögninn kom hefur ekki bor- ið á þeim, en áður en tækið kom hafði Baldvin hreinsað húsin af músum með eitri og gildrum. Baldvin skiptir túninu í hólf þegar hann beitir fé á það. Til þess notar hann rafgirðingar af nýsjálenskri gerð með fjórum strengjum og hefur rafmagn á efsta og næstneðsta streng og það virðist alveg duga. Bæði Elín og Baldvin starfa í Slysavarnarfélaginu á Árskógs- strönd og Baldvin er félagi í Lions- klúbbnum í sveitinni og Björgunar- sveit Árskógsstrandar og þessi fé- lagsstörf segir hann að gefi sér mik- ið. Eldfjallið Etna á Sikiley er sann- kallaður umhverfisböðull, að vísu náttúrlegur. Jafnvel þegar hún gýs ekki, spýr hún 50 tonnum af brenni- steinsvetni á klukkustund. Italskir og sænskir vísindamenn hafa líka mælt hve mikið brenni- steinsvetni kemur úr tveimur minni eldfjöllum í grennd við Sikiley: Strombóli ósar 7 tonnum af þessu eitraða efnasambandi á klst., jafnvel þegar fjallið gýs ekki og fjall að nafni Vulcano einu tonni á klst. Eldfjöll jarðar spúa miklu af brennisteins- samböndum út í loftið en vistkerfið hefur lagað sig að því. Það er þegar hin gríðarlega mengun frá verk- smiðjum og orkuverum bætist við sem náttúran rís öndverð. Háskólanám f búfrœði Samningur er milli Búnaðarfélags íslands og Búnaðarhá- skóla Noregs á Ási, NLH, um að skólinn veiti íslenskum námsmönnum skólavist. Skólaár Búnaðarháskólans hefst 20. ágúst ár hvert og skulu umsóknir berastfyrir 8. apríl til Búnaðarfélags íslands. Upplýs- ingar f.h. félagsins um námsbrautir, inntökuskilyrði o.fl. veitir Matthías Eggertsson. Búnaðarfélag íslands Bœndahöllinni Reykjavík. Sími 91-630300. 15A FREYR - 5*94

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.