Freyr - 01.03.1994, Blaðsíða 27
Ár 1993 Nr. 641
Rutland - sólarrafstöð
Gerð: Rutland, model ESB350. Framleiðandi: Rutland
ElectricFencing Co. Ltd., Englandi. Innflytjandi: Vélar
og þjónusta hf., Reykjavík.
YFIRLIT
Rutland sólarrafstöðin var prófuð af Bútæknideild
Rannsóknastofnunar landbúnaðarins sumarið 1993 og
athuganir gerðar bæði á rannsóknarstofu og við almenna
notkun.
Rafstöðin er ætluð til framleiðslu raforku úr sólar-
geislum einkum til nota við að rafvæða rafgirðingar.
Rafstöðin er 0,4 m2 plata í álramma. Hún er fest ofan á
málmskáp sem ætlaður er fyrir hleðslustilli, rafgeymi og
spennugjafa rafgirðingarinnar. Einungis rafstöðin var
prófuð á rannsóknarstofu. Mælingar sýndu að raffram-
leiðsla byggist að mestu á beinu sólskini, þótt nokkur
orka náist í gegnum þunna skýjahulu. Framleiðslan
mældist mest 39 Wött. A nær heiðríkum degi, 10. ágúst,
mældist orkunámið um 900 kJ (0,25 kWst.), en á
björtum sólarlausum degi, 17. ágúst, 171 kJ.
Erfitt er að meta hve langri girðingu sólarrafstöðin
annar. Það ræðst mest af veðráttu og ástandi girðingar.
Stærð spennugjafa og rafgeyma skiptir líka máli.
Reynsla af sólarrafstöðvum við rafgirðingar bendir til að
talsvert hagræði sé af notkun þeirra þar sem erfitt er um
aðra orkuöflun. Engir hreyfanlegir hlutir tilheyra þess-
um búnaði, þannig að búast má við góðri endingu og
öryggi í rekstri, en rétt er þó að taka fram að ekki liggja
fyrir innlendar athuganir í þeim efnum.
Spennugjafar fyrir rafgirðingar
Frh. afbls. 167.
Erfitt er að túlka þessar niðurstöður með það í huga
að benda á heppilegustu eða lökustu spennustöðvarnar
út frá gerð slaganna sem hún gefur. Af niðurstöðunum
má þó álykta hvaða stöðvar eru líklegastar til að geta
annað löngum margstrengja girðingum.
Athuganir leiddu í ljós að nær ógjörningur er að segja
fyrir um hve langa girðingu ákveðin spennustöð getur
annað. Til þess eru aðstæður of breytilegar bæði hvað
snertir gerð girðinganna, efnisval og land sem girt er.
Athugið.
Bútœknideild Rala býdur upp á áskrift að Búvélaprófun-
um gegn vœgu árgjaldi. Áskrifendur fá sendar skýrslurn-
ar í heild um leið og þœr koma út en ímörgum tilvikum er
óskað eftir ítarlegri upplýsingum en birtist hér í blaðinu.
Peir sem óska eftir að gerast áskrifendur eða fá nánari
upplýsingar hafi samband við skrifstofu Bútœknideildar
á Hvanneyri, símar 93-70000 og 93-70123.
Nafn leiðrétt
Halla Guðmundsdóttir ritari stjórn-
ar Sauðfjársœðingastöðvarinnar af-
henti Hjalta Gestssyni heiðursskjal
sunnlenskra sauðfjárrœktarmanna.
Prentvillupúkinn skipti um nafn á
Höllu í 4. tbl. Blaðið biðst velvirð-
ingar.
Moirm i
Ráðstefna
um landgrœðslu
Fjölsótt ráðstefna um landgræðslu
var haldin á Selfossi 12. febrúar sl. á
vegum Landgræðslu ríkisins,
Fagráðs í landgræðslu og Landmæl-
inga íslands. Par voru flutt mörg
áhugaverð erindi. Unnið er að því
að gera heildaryfirlit yfir rof á Is-
landi með nýrri gerð korta sem
byggjast á gervitunglamyndum.
Kortin auðvelda að meta ástand
landsins og að skipuleggja viðeig-
andi ráðstafanir. Þetta kom fram í
máli Egils Jónssonar, formanns
Fagráðs í upphafi ráðstefnunnar.
5*9* - FREYR171